Bílar

Hagnaður Volkswagen og Daimler minnkar

Finnur Thorlacius skrifar
Ætli nýr Golf eigi ekki vænan hlut í hagnaði Volkswagen?
Ætli nýr Golf eigi ekki vænan hlut í hagnaði Volkswagen?
Var 155% meiri hjá Volkswagen en Daimler fyrsta ársfjórðunginn.

Erfiður Evrópumarkaður og miklar fjárfestingar í nýjum bílum minnkaði hagnað Volkswagen á fyrsta ársfjórðungi um 26% frá því í fyrra. Samt ætlar VW ekki að lækka hagnaðarspá fyrirtækisins fyrir allt árið sem kveður á um sama hagnað og í fyrra, 11,5 milljarð Evra.

Hagnaðurinn nú var 2,34 milljarðar Evra, eða 358 milljarðar króna. Velta VW féll 1,6% milli ára en kostnaður jókst. Sala allrar VW samstæðunnar með sín 12 merki nam 864.400 bílum í mars einum.

Daimler, móðurfyrirtæki Mercedes Benz, upplifði enn meira fall hagnaðar, eða um 56%. Daimler náði 917 milljón Evra hagnaði en á sama tíma í fyrra 2,1 milljarði Evra. Veltan dróst saman um 3% hjá Mercedes og á hinum mikilvæga markaði í Kína var samdrátturinn 11%. Það var þó hinn erfiði Evrópumarkaður sem stærstan þátt á í minnkaðri sölu og hagnaði, en hann skrapp í heildina saman um 9,7% og um 13% í Þýskalandi.

Jákvæðu fréttirnar fyrir Mercedes Benz í Evrópu eru helst þær að í mars jókst salan þar um 0,8% en minnkaði um 4,5% hjá BMW og 15,0% hjá Audi. Mercedes Benz er aðeins á eftir keppinautunum BMW og Audi í sölu, en á fyrsta ársfjórðungnum seldi Mercedes 324.898 bíla, Audi 369.500 og BMW 381.404 eintök.






×