Nokkrir nýir frá Benna í Fífunni Finnur Thorlacius skrifar 3. maí 2013 08:45 Chevrolet Cruze Station
Chevrolet Trax jepplingur og Chevrolet Cruze station frumsýndir. “Við erum sérlega stolt af framlagi okkar til sýningarinnar Allt á hjólum, að þessu sinni”, segir Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna,. “Breiddin í Chevrolet vörumerkinu hjá okkur hefur aldrei verið meiri og að þessu sinni frumsýnum við tvo nýja bíla frá þeim, smájeppann Trax og Cruze station, hvoru tveggja bíla sem hafa vakið mikla athygli. Auk þess erum við að kynna sérstaklega Cruze LT, sem á eftir að koma viðskiptavinum skemmtilega á óvart fyrir ríkulegan staðalbúnað og ótrúlegt verð. Chevrolet er í sókn um allan heim og kaupendum stendur því til boða fleiri valkostir, glæsilegri línur og umhverfisvænni lausnir en nokkru sinni fyrr, - og það á mjög viðráðanlegu verði.“ Bílabúð Benna mun einnig sýna rjómann af snilldinni frá Porsche í Fífunni: Porsche Cayman sem var valinn Sportbíll heimsins 2013, 911 C4S Cabrio blæjubílinn og Cayenne Diesel jeppann. “Við hlökkum því til að fá fólk til okkar í Fífuna um helgina og vekjum líka athygli á því að Chevrolet salurinn í Tangarhöfða verður eftir sem áður opinn á laugardaginn, frá 12:00 til 16:00, fyrir þá sem vilja koma, skoða og reynsluaka.”Jepplingurinn Chevrolet TraxPorsche Cayman - Sportbíll ársins í heiminum
Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Innlent