"Staðan í laxveiði verri en við óttuðumst" - Neyðarkall frá veiðileyfasölum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 30. maí 2013 14:11 Landssamband stangveiðifélaga segir að lækka verði veiðileyfi strax svo þau seljist Mynd / Garðar
Landssamband Stangaveiðifélaga segir samdrátt í sölu laxveiðileyfa yfir þrjátíu prósent og sendir ákall til landeigenda um verðlækkanir strax til að "bjarga því sem bjargað" verði. Fréttatilkynning frá Landssambandi Stangaveiðifélaga: Samdráttur í sölu á laxveiðileyfum yfir 30% ‐ Veiðileyfasalar óttast algert hrun meðal erlendra veiðimanna ‐ Samdráttur hjá íslenskum veiðimönnum um 40% ‐ Verðum að setjast niður með landeigendum og bjarga því sem bjargað verður ‐ Verðlækkanir verða að koma til framkvæmda strax. Ögurstund er runnin upp á stangaveiðimarkaðnum á Íslandi. Samkvæmt nýrri markaðsúttekt sem unnin hefur verið fyrir LS kemur í ljós mikill samdráttur í sölu veiðileyfa. Samdráttur á besta tímanum er á bilinu 10 – 20% í stangafjölda en þar sem þetta er dýrasti tíminn þá eru fjárhagsleg áhrif enn meiri og lætur nærri að vera um 30% fall í sölu hjá flestum stærstu veiðileyfasölum á Íslandi. Íslenskir stangaveiðimenn halda einnig að sér höndum og þar mælist samdrátturinn allt að 40% samanborið við sama tíma í fyrra. Veiðifélög og leigutakar sem rætt var við í tengslum við úttektina sögðu að aðstæður væru fordæmalausar. Kreppan er núna fyrst að koma fram á þessum markaði og á sama tíma er Evrópa í sárum. Ofan á þetta allt bættist mesta hrun sem orðið hefur í íslenskri laxveiði síðasta sumar. Veiðileyfi á Íslandi eru einfaldlega orðin of dýr í samanburði við hágæða laxveiðileyfi í heiminum. Stangaveiðifélag Reykjavíkur bendir á að veiðileyfi hafi á síðustu 15 – 20 árum hækkað 100% umfram vísitölu og hafi því tvöfaldast að raungildi. Dæmi um þróunina frá SVFR; Hjónaferð í Hítará árið 1998 á dýrasta tíma kostaði með öllu 120 þúsund krónur. Sama ár kostaði helgarferð fyrir hjón til London einnig 120 þúsund krónur. Nú kostar veiðiferðin í Hítará ríflega hálfa milljón á meðan að Londonferðin er á 180 þúsund krónur. Viktor Guðmundsson formaður LS: „Landssamband Stangaveiðifélaga vissi að ástandið var alvarlegt en þessi úttekt sýnir og sannar að staðan er verri en við óttuðumst og ljóst að menn hafa hreinlega áhyggjur af vörumerkinu Íslandi í laxveiðinni. Stjórn LS telur að bregðast þurfi strax við en að sama skapi er mikilvægt að allir hagsmunaaðilar komi að því borði og ræði málin með þeim hætti að lágmarka skaðann sem fyrirsjáanlegur er“.
Stangveiði Mest lesið Er meiri veiði núna í Eystri Rangá en 2013 Veiði Langá hækkaði um 30 sm í nótt Veiði Margir stórir fiskar sagðir á ferli í Varmá Veiði Veiðin komin í gang á heiðunum Veiði Opin fyrirlestur um hreindýraveiðar Veiði Elliðaárnar: 31 lax á fyrsta degi Veiði Má skjóta bleikju með haglabyssu? Veiði Fiskur í Hlíðarvatni í miklu fæði og hunsar veiðimenn Veiði Myndskeið af risalaxinum í Laxá í Kjós Veiði 48 laxa holl í Kjarrá Veiði