Þessi lenti í hvirfilbyl en gengur enn Finnur Thorlacius skrifar 7. júní 2013 12:15 Ansi illa farinn en gengur fínt
Eigandi þessa Ford Mustang bíls var einn hinna óheppnu þegar hinir öflugu hvirfilbylir gengu yfir í Oklahomafylki í Bandaríkjunum um daginn. Eins og sést á myndinni er hann einkar illa farinn, topplaus og laus við flesta óþarfa hluti eins og hurðir, húdd og bretti! Eigandinn fann hann svona eftir að ósköpin höfðu dunið yfir, settist undir stýri og viti menn, bíllinn fór í gang og síðan hefur hann ekið honum um heimabæ sinn óáreiddur og vonandi kátur með að eiga nú topplausan sportbíl eins og marga dreymir um. Heimamenn sem bloggað hafa um bíl þennan hafa sagt með miklu þjóðernisstolti að ómögulegt sé að drepa það sem smíðað er í landi hinna frjálsu! Eitt er víst að ekki hefðu allir bílar þolað þetta og væru enn í notkun. Ætli Ford fyrirtækið færi honum ekki nýjan Mustang í þakklætisskyni fyrir að auglýsa með svo frumlegum hætti hvað bílar þeirra þola.
Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent