Óvenju stórir laxar í Elliðaám Jakob Bjarnar skrifar 25. júní 2013 12:52 Richard Hansen með myndarlegan hæng úr Teljarastreng. Ásgeir Heiðar
Veiðimaðurinn Richard Hansen veiddi vænan hæng, sem sjá má á meðfylgjandi mynd, í morgun í Elliðám. Laxinn tók maðk í Teljarastreng. Laxinn sem Hansen veiddi er 6,9 kíló og 91 sentímetra langur en laxar sem hafa verið að veiðast í Elliðaám, sem er dæmigerð smálaxaá, hafa verið vænir vel og velta nú veiðimenn því fyrir sér hvað sé að gerast? Bjarni Júlíusson, formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, sem hefur umsjá með Elliðaám, telur að aðstæður í hafi hljóti að vera betri nú en í fyrra. En, þá voru heimtur slæmar. Ásgeir Heiðar með ótrúlega stóran lax úr Elliðaám.Ásgeir Heiðar veiðimaður segir að það hafi verið að veiðast óvenjustórir laxar úr Elliðaám þann stutta tíma síðan þær opnuðu. Sjálfur tók hann vel vænan lax sem hann sleppti. Hinn var drepinn og á eftir að vigta hann.
Stangveiði Mest lesið Veiðin með Gunnari Bender - 8. þáttur Veiði Leirvogsá er komin í gang Veiði Veiðisvæði Skálholts komin í sölu Veiði Íslensku hrosshárin slógu í gegn Veiði Veiðin í Stóru Laxá að fara í gang Veiði Öll veiðisvæði SVAK komin á vefinn Veiði Fyrstu veiðitölur frá Landssambandi Veiðifélaga Veiði Vikulegar veiðitölur úr laxveiðiánum Veiði Vikulegar veiðitölur segja ekki allt Veiði Saga af hrygnu í ánni Liza Veiði