Bílar

Banaslys í Le Mans þolakstrinum

Finnur Thorlacius skrifar
Danski ökuþórinn Allan Simonsen lést er er hann ók bíl sínum á öryggisgirðingu í Le mans keppninni sem nú stendur yfir. Saga Le Mans er því miður þyrnum stráð og margur ökumaðurinn hefur látist í þessari erfiðu keppni. Slysið átti sér stað er aðeins 10 mínútur voru liðnar af keppninni.

Allan var fluttur á spítala eftir slysið en var útskurðaður látinn fljótlega eftir komuna þangað.  Allan ók Aston Martin bíl ásamt tveimur öðrum ökumönnum sem skiptast á um aksturinn og voru þeir allir Danir, auk hans Christoffer Nygaard og Kristian Poulsen. Allen var 34 ára gamall. Í myndskeiðinu að ofan sjást þessar 10 fyrstu mínútur keppninnar og endar á þessu hörmulega slysi.

Ekki fylgir fréttinni um slysið að keppni hafið verið hætt vegna þess.






×