Fjögur síðustu ár hefur söluhæsta einstaka bílgerðin í Bandaríkjunum sem framleidd er að fullu þar verið Toyota Camry. Breyting gæti orðið á því þar sem söluhæsti bíllinn þetta árið er nú pallbíllinn Ford F150, en sá bíll var sá söluhæsti þrjú ár á undan þessum góðu árum Camry.
Þessi breyting er nokkuð lýsandi fyrir ágæta sölu amerískra pallbíla og almennt góða sölu þarlendra framleiðenda. Söluaukningin á Ford F-150 það sem af er ári nemur 22 prósentum. Engu að síður er Toyota söluhæsta bílamerkið í Bandaríkjunum eins og í fyrra og slær þar við þeim þremur stóru amerísku.
Í næstu sætum á eftir hinum einstöku gerðum F-150 og Camry eru svo Dodge Avenger, Honda Odyssey, Toyota Sienna, Chevrolet Traverse, Toyota Tundra, GMC Acadia, Buick Enclave og Toyota Avalon í tíunda sæti.
