Volkswagen Passat fertugur Finnur Thorlacius skrifar 28. júlí 2013 15:32 Volkswagen Passat af fyrstu og sjöundu kynslóð
Sjö kynslóðir af Volkswagen Passat hafa runnið um göturnar frá því fyrsti Passat bíllinn rann af færiböndunum í Wolfsburg í Þýskalandi árið 1973. Síðan þá hafa verið framleiddir meira en 20 milljón Passat bílar. Það var nákvæmlega 25. júlí árið 1973 sem fyrsti Passatinn kom tilbúinn úr verksmiðjum Volkswagen. Fyrsta kynslóð hans var framleidd til ársins 1980, en þá kom önnur kynslóð hans fram á sjónarsviðið. Þriðja kynslóð Passat kom svo fram 1987, sú fjórða 1993, fimmta 1997, sjötta árið 2006 og núverandi sjöunda kynslóða hans kom á markað árið 2010. Volkswagen Passat er alls ekki sami bíllinn á öllum mörkuðum því sá bíll sem seldur er undir þessi nafni í Bandaríkjunum er alls ekki eins og sá sem okkur Evrópubúum býðst og enn önnur útgáfa hans býðst svo Kínverjum. Passat er ekki ýkja langt frá Volkswagen Bjöllunni í heildarsölu, en Bjallan hefur selst í 21,5 milljón eintökum frá árinu 1938, en ansi langt á þó Passatinn í að ná Toyota Corolla, mest seldu bílgerð heims, sem selst hefur í 40 milljón eintökum frá árinu 1966. Volkswagen Golf hefur selst í um 30 milljón eintökum frá árinu 1974 og er því söluhæsti bíll Volkswagen frá upphafi. Forde F-línu pallbíllinn er næst mest selda bílgerð heims frá upphafi með yfir 34 milljón eintök seld.
Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent