Bílar

Mercedes Benz selur vel

Finnur Thorlacius skrifar
Mercedes Benz A-Class
Mercedes Benz A-Class
Mercedes Benz byrjar seinni hluta ársins á blússandi siglingu, með metmánuði. Alls seldi þýski lúxusbílaframleiðandinn 811.227 bifreiðar á fyrstu sex mánuðum ársins sem er 8,1% söluaukning miðað við sama tímabil í fyrra. Júlí var einnig metmánuður hjá Mercedes Benz en fyrirtækið seldi alls 116.790 bifreiðar í mánuðinum.

Hinir nýju E-Class og CLA hafa komið mjög sterkir til leiks hjá Mercedes-Benz á fyrri hluta ársins 2013 og auk þess hefur sala á A-Class og B-Class verið mjög góð sem skýrir að miklu leyti söluaukninguna hjá fyrirtækiinu. Mesta söluaukningin er í Bandaríkjunum, Kína og Rússlandi samkvæmt tilkynningu frá Mercedes Benz.

Á Íslandi er aukning sölu á Mercedes Benz fólksbifreiðum 38,2% á fyrstu sex mánuðum ársins, en skráðar hafa verið 105 Mercedes Benz bifreiðar hér á landi á þessu ári.






×