Bílar

Saab verksmiðjurnar gangsettar að nýju

Finnur Thorlacius skrifar
Verksmiðja Saab í Trollhättan
Verksmiðja Saab í Trollhättan
Í næsta mánuði mun framleiðsla hefjast aftur í Saab bílaverksmiðjunum í Trollhättan í Svíþjóð. Þar verða framleiddir Saab 9-3 bílar sem ganga fyrir rafmagni, en einnig hefðbundnir 9-3 bílar með forþjöppuvélar.

Kínversk-japanska eignarhaldsfélagið National Electric Vehicle Sweden keypti Saab eftir gjaldþrot þess með það í huga að framleiða rafmagnsbíla en notast samt við framleiðslubíla Saab.

Nokkrum erfiðleikum er bundið að hefja framleiðsluna þar sem talsvert af birgjum Saab lögðu upp laupana við gjaldþrotið. Í fyrstu verða aðeins framleiddir hefðbundnir Saab bílar sem ganga fyrir bensíni, en á næsta ári verða smíðaðir rafmagnsbílar í sama útliti.

Einir 400 starfsmenn eru nú að störfum í Trollhättan við að undirbúa framleiðsluna og síðan bætast 180 við þegar framleiðslan sjálf hefst. Nýja Saab á eftir að setja upp sölukerfi, en öllum söluumboðum fyrirtækisins var að sjálfsögðu lokað við gjaldþrotið.

Ólíklegt þykir að rafmagnsbílarnir nýju með Saab merki verði seldir í Bandaríkjunum í fyrstu, en horft til Evrópu og Asíu í upphafi. 






×