Bílar

Rafmagnsreiðhjól sem heldur 80 km hraða

Finnur Thorlacius skrifar
Flest reiðhjól með rafhlöðum hafa takmörkun á hraða þeim sem hjólin geta náð með tilstilli rafhlöðunnar. Þessi hjóleigandi hefur ekki áhuga á slíkum takmörkunum og hefur bætt við 72 volta lithium-ion aukarafhlöðu sem hann hefur í bakpoka sínum. Fyrir vikið geysist hjól hans áfram og getur haldið 80 km hraða á klukkustund í lengri tíma.

Drægni hjólsins er líka mikið, eða 60 kílómetrar. Því ætti hann að geta komist þá vegalengd á um 45 mínútum. Eigandinn er ekki nema tvær klukkustundir að fullhlaða rafhlöður hjólsins, svo þarna er komið frartæki sem auðveldlega getur leyst bílinn af hólmi á stað eins og þessum, í Kaliforníu.

Sjá má hversu öflugt hjólið er í meðfylgjandi myndskeiði og mikinn áhuga vegfarenda á þessu magnaða hjóli.






×