Bílar

Ákveðinn hrútur

Finnur Thorlacius skrifar
Það er ekki á hverjum degi sem mótorhjólamenn eru í hættu vegna geðstirðra hrúta sem ganga lausir, en þessum brá heldur betur í brún á leið sinni upp þröngan skógarstíg. Hrúturinn stöðvar för hans með ógnvænlegum tilburðum og ræðst nokkrum sinnum á mótorhjólamanninn og stangar hann hressilega með sínum myndarlegu hornum.

Svo vel vill til sem endranær að á hjálmi mótorhjólamannsins er myndavél sem nær þessari skondnu áras hrútsins ákveðna og vel þess virði að kíkja á. Þar sést að góð ástæða er fyrir hræðslu hans og för hans varð því ekki lengri upp stíginn þann daginn og ekki víst að hann leggi upp hann á næstunni.






×