Setti hraðamet og var handtekinn Finnur Thorlacius skrifar 8. september 2013 11:45
New York búi sem stærði sig af því á netinu að eiga nýtt hraðametið í akstri kringum Manhattan situr nú bak við lás og slá. Ekki er þó ljóst hvernig lögreglan áttaði sig á því um hvern var að ræða þar sem ekkert í myndskeiðinu sem hann birti sýnir hver í hlut á. Ökumaðurinn, Christopher Adam Tang notaði til hraðakstursins BMW Z4 bíl sinn og náði að komast hringinn á innan við 24 mínútum að nóttu til og myndaði hringinn hraða á leiðinni. Lögreglan náði í hann á heimili hans og setti beint inní klefa þar sem hann dúsir nú liklega frekar óánægður með myndbirtinguna. Þetta ætti að vera öðrum ökumönnum víti til varnaðar þess að birta myndir af lögbrotum sínum. Kannski rak lögreglan augun í bíl hans fyrir tilviljun fyrir utan heimili hans og með hjálp myndavéla sem tóku myndir af ökuferðinni örlagaríku var hægt að sanna að þar var um bíl hans að ræða. Myndbandið sýnir ferð hans og nýtt hraðamet sem ökumaðurinn sér nú líklega eftir. Langur er armur laganna.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent