Jack Live í kvöld: Kaleo, Jan Mayen og The Vintage Caravan Orri Freyr Rúnarsson skrifar 6. september 2013 17:11 Kaleo verða á Jack Live í kvöld.
Útvarpsstöðin X-ið 977 blæs til veislu í kvöld þegar að hin magnaða tónleikaröð Jack Live verður endurvakin á Gamla Gauknum. En tónleikarnir í kvöld eru hluti af 20 ára afmælisfögnuði X-ins en stöðin fór fyrst í loftið haustið 1993. Hljómsveitirnar Kaleo, Jan Mayen og The Vintage Caravan stíga á stokk og er því hægt að lofa stórkostlegri skemmtun. Kaleo er ein heitasta hljómsveit landsins um þessar mundir og hefur hún verið að gera allt vitlaust á ljósvakamiðlum með lögunum Vor í Vaglaskógi og Rock N' Roller. Jan Mayen þekkja svo flestir tónlistarunnendur en hljómsveitin naut mikilla vinsælda í kringum útgáfu plötunnar Home of the Free Indeed sem kom út árið 2004. Sveitin fór svo í nokkurra ára hlé en er kominn aftur á stjá. The Vintage Caravan ætti svo ekki að þurfa að kynna fyrir neinum en þrátt fyrir ungan aldur hljómsveitarmeðlima hafa þeir fyrir löngu sannað sig sem ein albesta tónleikasveit landsins. Eins og áður segir verða tónleikarnir á Gamla Gauknum í kvöld og opnar húsið klukkan 22:00 og fer fyrsta sveit á svið um 23:00. Líkt og í gamla daga er aðgangseyrir einungis 800kr
Harmageddon Mest lesið Haukur skoðar heiminn: „Vona að þeir hafni mér ekki“ Harmageddon Piparkökur á Gauknum Harmageddon Sannleikurinn: Elsta systkinið mest óþolandi Harmageddon Sannleikurinn: "Það er engin hálka í Reykjavík“ Harmageddon Sannleikurinn: Vinsælustu folunum oftast skilað Harmageddon Sannleikurinn: Yfirmaður hjá RÚV býr frítt eins og forsetinn Harmageddon Framtíðin veltur á kakkalökkum Harmageddon Væntanlegt lag frá Muse alltof gróft fyrir útvarp Harmageddon Hættir sem markaðsstjóri X-ins 977 til þess að semja hundadans Harmageddon Mark Lanegan í Fríkirkjunni 30. nóvember Harmageddon