Bílar

200% aukning á sölu rafmagnsbíla í BNA

Finnur Thorlacius skrifar
Nissan Leaf selst nú vel í Bandaríkjunum.
Nissan Leaf selst nú vel í Bandaríkjunum.
Um síðustu helgi var haldinn í þriðja sinn dagur rafmagnsbílsins í heiminum. Sérstök dagskrá var í einum 95 borgum í tilefni þessa, flestum þó í Bandaríkjunum og Kanada. Feykileg fjölgun rafmagnsbíla hefur orðið í Bandaríkjunum á síðustu árum og er meðaltalsaukningin 200%.

Árið 2011 seldust þar 10.000 bílar, 34.000 árið 2012 og nú í ár hafa selst 87.000 rafmagnsbílar og enn eftir 3 mánuðir. Í desember árið 2010 seldust 345 rafmagnsbílar vestanhafs, en 11.000 í síðasta mánuði. Bara Nissan Leaf hefur nú selst í 35.000 eintökum þar og aukningin á milli ára er 317%.

Bílgerðum í rafmagnsbílum hefur fjölgað að sama skapi, en þær voru aðeins 7 árið 2010, 13 árið 2011, 20 í fyrra og 28 í ár. Svo virðist því að í bensínlandinu fræga eigi rafmagnsbílar mjög uppá pallborðið nú, enda víða miklar hvatar í boði við kaup á slíkum bílum.







×