Ekki hissa á því að ríkisstjórnin reyni að leggja niður Sérstakan saksóknara Frosti Logason skrifar 2. október 2013 12:21
Björn Valur Gíslason, varaformaður Vinstri grænna, segir það ekki koma sér á óvart að ríkisstjórn Sjálfstæðis og Framsóknarflokks skeri niður fjárveitingar til Sérstaks saksóknara. Sérstakur saksóknari fær einungis 559 milljónir króna ráðstafaðar frá ríkinu á næsta ári. Heimildir Harmageddon herma að starfsmenn þar túlki það nánast sem lokun embættisins. Það er í það minnsta líklegt til að draga verulega úr þeirri starfsemi þegar litið er til þess að embættið var rekið á 1.350 milljónum króna á núverandi starfsári. Björn Valur minnti á að Eva Joly, sem var sérlegur ráðgjafi ríkisins vegna rannsókna á efnahagsbrotum sem tengdust hruni fjármálakerfisins, hefði í upphafi varað við þessari þróun.„Hún sagði að það yrði reynt að tortryggja þessar rannsóknir og þegar þeir kæmust aftur að þá myndu þeir reyna að leggja þessi embætti niður,“ sagð Björn Valur og átti þá við svokallaða hægri menn sem nú sitja í ríkisstjórn. Hann sagði niðurskurðinn til málaflokksins einungis tilraun þeirra til að draga úr uppgjöri hrunsins og leið til að koma félögum sínum til bjargar eins og það var orðað. Hægt er að hlusta á brot úr viðtalinu við Björn Val hér að ofan.
Harmageddon Mest lesið Sannleikurinn: Ákæruvaldið reyndi að fá barn dæmt fyrir að svíkjast um að stunda vændi Harmageddon Ísland í röngu tímabelti Harmageddon "Það eru ekki allar stelpur svo heppnar að fæðast með píku" Harmageddon Samdi Can´t Walk Away í fangelsi Harmageddon Myndband: Vök með nýtt lag á Nordic Radio Playlist Bar Harmageddon Ræða Martin Luther King framkallar enn gæsahúð Harmageddon Er píkan óhrein? Harmageddon Kings Of Leon með nýja plötu Harmageddon Segir Jóhönnu þurfa að iðrast og snúa frá villu síns vegar Harmageddon Sannleikurinn: Forsætisráðherra ferðaðist aftur í tímann til að stöðva þjóðargjaldþrot Harmageddon