Ímyndin stærri en raunveruleikinn
This Is Sanlitun er gamanmynd og skrifaði Róbert handritið að myndinni ásamt aðalleikara myndarinnar, Carlos Ottery. Að sögn Róberts er aðalpersónan byggð á ákveðinni staðalímynd sem fyrirfinnst í Peking. „Vestræna fólkið sem maður hittir er allt að gera eitthvað merkilegt. Á nafnspjöldunum þeirra stendur: framkvæmdastjóri, framleiðandi, ljósmyndari eða plötusnúður. Síðan spyr maður nánar út í vinnu þeirra og þá kemur í ljós að þau starfa flest við enskukennslu. Ímyndin er stærri en raunveruleikinn og myndin fjallar um þessar týpur,“ útskýrir hann.
Tökur fóru fram í felum
Inntur út í tökuferlið viðurkennir Róbert að það hafi gengið á ýmsu á meðan á tökum stóð. „Við vorum ekki með tökuleyfi frá borgaryfirvöldum og því þurftum við að nota litla vél í tökurnar og láta lítið fyrir okkur fara. Nokkrum dögum áður en tökur hófust höfðu yfirvöld komið á nýrri reglu og voru heimamenn hvattir til að hringja í neyðarnúmer ef þeir urðu varir við að útlendingar hegðuðu sér á vafasaman hátt. Útlendingarnir í tökuliðinu okkar hættu því við að vera með og við þurftum að setja saman nýtt lið sem samanstóð af ófaglærðu fólki sem vann af ástríðu. En við komumst sem betur fer upp með þetta, enginn hringdi og kvartaði,“ segir hann og hlær.
Hlakkar til frumsýningarinnar
Leikstjórinn hefur verið búsettur í Peking í sex ár og kann að eigin sögn vel við sig í borginni. Hann verður viðstaddur frumsýningu myndarinnar hér heima. „Ég hlakka mikið til að sýna hana á Íslandi. Myndin fer svo í sýningu í Kína í byrjun næsta árs og svo á áframhaldandi hátíðaflakk,“ segir hann að lokum.

Róbert Ingi er mikill aðdáandi fótboltaliðsins Manchester United og hefur oft vísað til liðsins í kvikmyndum sínum. Spurður hvort slíkt sé einnig uppi á teningnum í This Is Sanlitun segir Róbert svo vera.
„Það er karakter í myndinni sem er kínverskur enskunemandi. Til að hjálpa útlendingum velja Kínverjar sér oft enskt nafn. Þessi valdi nafnið Ferguson og gengur um í bol merktum liðinu. Sá sem leikur þetta hlutverk var jafnframt tökumaður okkar,“ segir Róbert.