
Konungleg Sveppasósa
Passar vel með – svínasteik, nauti, lambi og hreindýri
Fyrir sex
½ smátt saxaður laukur
10 sveppir skornir í báta
2 msk. smjör
1 msk. hveiti
500 ml nautasoð (500 ml vatn og tveir nautateningar)
½ tsk. timian
svartur pipar
paprikuduft
rósmarín á hnífsoddi
100 ml rjómi
3 ml koníak
Setjið smjör í pott, steikið sveppi og lauk við vægan hita í 2-3 mínútur. Kryddið með timian, pipar, paprikudufti og rósmarín. Hrærið hveitið saman við þannig að smjörbolla myndist í botninum. Hellið nautasoðinu rólega saman við og hrærið í á meðan grunnurinn er að ná upp suðu aftur og setjið þá koníakið út í. Sjóðið við lágan hita í 15–20 mín. og hrærið í með jöfnu millibili. Þykkið meira ef vill með maiz- ena. Bætið rjómanum út í þegar fimm mínútur eru eftir af suðu- tímanum.

Passar best með nauti en líka með lambi
Fyrir sex
3 eggjarauður
300 g íslenskt smjör
2 msk. bearnaise-essens
hvítur pipar eftir smekk
1 msk. estragon/fáfnisgras
10 ml volgt vatn
1 teningur kjötkraftur
Bræðið smjörið við vægan hita í potti. Setjið annan pott á eldavélina með um það bil lítra af vatni í og látið mjög væga suðu koma upp. Setjið eggjarauðurnar í stálskál sem passar ofan í vatnspottinn. Setjið skálina ofan á hitann og hrærið með písk í eggjarauðum þangað til þær eru orðnar vel þykkar. Passið að lyfta skálinni reglulega af hitanum svo að eggin eldist ekki. Setjið essens, pipar, kjötkraft og örlítið af volgu vatni út í og hrærið allan tímann. Ausið hægt og rólega smávegis af smjörinu út í eggin og hrærið jafnóðum. Það má setja nokkra dropa af vatni út í inn á milli ef sósan er mjög þykk. Þetta er endurtekið þangað til smjörið er allt komið út í eggin og þá ætti besta steikarsósa í heimi að blasa við.

Ómissandi með hangikjötinu
3 msk. smjör
1½ msk hveiti
500 ml mjólk
múskat á hnífsoddi
salt
3–5 msk. sykur
Setjið smjör í pott á rúmlega hálfan hita og bræðið. Hrærið hveitið saman við og búið til smjörbollu. Hellið nú mjólkinni rólega út í og hrærið stanslaust í á meðan. Á meðan jafningurinn er að ná upp suðu þá er mikilvægt að hræra af og til svo að ekki brenni við í pottinum. Sjóðið í 10 mínútur á vægum hita. Bætið múskati og salti við og slökkvið undir. Að lokum er sykri blandað hægt og rólega saman við.