Þorp í blokk í Breiðholtinu Jón Yngvi Jóhannsson skrifar 27. desember 2013 11:00 Eva Rún Snorradóttir
Bækur: Heimsendir fylgir þér alla ævi Eva Rún Snorradóttir Bjartur Kápa þessarar fyrstu ljóðabókar Evu Rúnar Snorradóttur er bæði falleg og snjöll og hún tengist innihaldi hennar náið. Öll kápan, bæði framhlið, bakhlið og innábrot eru ein samfelld mynd af kunnuglegu mótífi, blokk í Breiðholti þar sem skiptast á gluggar og formuð steinsteypa í tveimur litum. Myndin vekur ýmis hugrenningatengsl, við geómetríska abstraktlist, fjölskyldualbúm, jóladagadagatal, skákborð og þannig mætti áfram telja, en vísunin í veruleikann er líka skýr, í Breiðholtið og ákveðið tímabil, áttunda og níunda áratuginn. Ljóð Evu Rúnar eru augnabliksmyndir sem flestar eru frá þessum tíma og úr þessu umhverfi, úr einni blokk af mörgum þar sem búa „jafn margir íbúar/og í litlu þorpi úti á landi“. Hverfið er „Hrúga af þorpum/í stafrófsröð“ (7). Ljóðmælandi rifjar upp æsku sína í einu af þessum þorpum, barnaleiki og unglingsár, sársauka og gleði. Sum ljóðanna eru kankvís, jafnvel bregður fyrir ljúfsárri nostalgíu á stöku stað en áhrifamestu ljóðin eru þau þar sem óvæntur sársauki eða ljótleiki ryðst inn í hversdagsleikann eins og ljóðið um nýju blokkina sem „stendur eins og til að fela/ að þarna hafi verið sjoppa./ Sjoppa með sælgæti og kjallara/ starfsmann sem kunni að nýta sér þetta tvennt/ og laskaði drengina í hverfinu“.(22) Flest ljóðin eru án titils og saman mynda þau einn bálk. Þau er einfaldlega myndir eða minningar sem tengjast ákveðnum stað og tíma. Form ljóðanna er mjög einfalt, þau eru nær algerlega laus við stílbrögð, myndmál, endurtekningar eða önnur mælskubrögð. Ljóðmálið er tilgerðarlaust og einfalt þótt á stöku stað komi það á óvart, ýmist með mjög barnalegu orðalagi eða klúru. Þetta einfalda form gerir kröfur til skáldsins. Í langflestum ljóðanna heppnast þessi aðferð vel og myndirnar sem dregnar eru upp verða eftirminnilegar og stundum sláandi, einstaka ljóð skera sig úr, auk þeirra sem vitnað er í hér að ofan má nefna „Kona leikur eina krónu“ (9) en auðvitað eru önnur síður eftirminnileg. Heimsendir fylgir þér alla ævi er örstutt bók, 38 ljóð, flest aðeins nokkrar línur að lengd. Samt er í þessum ljóðum dreginn upp býsna sannfærandi heimur úr fortíðinni og ljóðin spanna vítt svið. Eva Rún fer vel af stað í þessari fyrstu bók sinni, þótt formið sé knappt og einfalt á yfirborðinu verður henni mikið úr efninu og bestu ljóðin í bókinni sitja í lesandanum.Niðurstaða: Fyrsta ljóðabók efnilegs skálds, einföld ljóð sem draga upp eftirminnilegar myndir.
Gagnrýni Mest lesið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Lífið Laufey fær eigin God of War leik Leikjavísir Datt af sviðinu og beint í skurð Tónlist Stjörnufans í eins árs afmæli Lífið Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Lífið Peabo Bryson er látinn Tónlist Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Lífið Fleiri fréttir Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Sjá meira