Veiði

Dregið um leyfi í Elliðaánum á morgun

Karl Lúðvíksson skrifar
Á myndinni má sjá hvaða vikur félagsmenn SVFR sóttu helst um, fyrir og eftir hádegi og stangarframboð.
Á myndinni má sjá hvaða vikur félagsmenn SVFR sóttu helst um, fyrir og eftir hádegi og stangarframboð.
Þrátt fyrir að félagsmenn- og konur innan SVFR veiði mikið og víða á þeim svæðum sem félagið býður uppá er alltaf mesta spennan fyrir hálfum degi í Elliðaánum.  Af hverju skyldi það vera?

SVFR var stofnað á sínum tíma vegna leigu á Elliðaánum og síðan þá hefur áin verið hornsteinn félagsins.  Þarna hafa margir félagsmenn fengið sína fyrstu laxa og þeir sem hafa verið lengi í veiðinni eru farnir að fara með börn eða barnabörn í ánna til að kenna þeim tökin á fyrsta laxinum.  Áin hefur marga fjölbreytta veiðistaði þar sem nálgast þarf laxinn á mismunandi hátt og hún hefur þess vegna kennt mörgum hvernig á t.d. að nálgast veiðistaði.  Það eru líklega jafn margar ástæður og sögur um ásóknina í Elliðaárnar eins og umsóknirnar eru margar.  Á morgun verður dregið um leyfin og SVFR sendi frá sér þessa tilkynningu vegna þessa og birtist hér með leyfi.

"Það stendur mikið til hjá SVFR á fimmtudaginn en þá verður dregið um veiðileyfi í Elliðaánum sumarið 2014. Drátturinn fer fram á bökkum ánna í húsnæði SVFR að Rafstöðvarvegi 14 og hefst stundvíslega kl. 17:30. Áhugasömum er boðið að koma og fylgjast með en einnig verður fjallað ítarlega um útdráttinn á vef SVFR og á Facebook-síðu félagsins eftir því sem honum vindur fram.

Mikill áhugi er meðal félagsmanna SVFR að veiða í Elliðaánum enda hefur veiðin undanfarin ár verið góð. Segja má að í Elliðaánum séu félagsmenn á heimavelli enda var félagið stofnað árið 1939 utan um leigu ánna og þar hafa fjölmargir veiðimenn tekið sín fyrstu skref í laxveiðinni – lært hvernig á að kasta, lesa vatn og krækja í laxa. Barna- og unglingadagar SVFR við Elliðaárnar eru t.a.m. lykilþáttur í fræðslustarfi félagsins.

Eins og við var að búast var töluverð umframeftirspurn eftir veiðileyfum í Elliðanum næsta sumar en umsóknir eru hátt í eitt þúsund. Vegna þessa var brugðið á það ráð að láta tölvu sjá um útdrátt leyfa líkt og hefur gefist vel við útdrátt hreindýraveiðileyfa. Félagsmenn SVFR sóttu í úthlutun um tiltekna viku sem þeir helst vilja veiða í og á fimmtudaginn kemur í ljós hverjir detta í lukkupottinn. Umsóknir þeirra sem ekki fá úthlutað leyfum fara í pott og verður dregið úr honum um lausa daga sem eftir standa. Fari svo að einhverjir dagar gangi ekki út verða þeir boðnir til sölu í vefsölu félagsins."






×