Bílar

Chevrolet Spark öruggastur smábílanna

Finnur Thorlacius skrifar
Chevrolet Spark í árekstrarprófi IIHS.
Chevrolet Spark í árekstrarprófi IIHS.
Bílaöryggisstofnunin  IIHS í Bandaríkjunum hefur rannsakað öryggi  11 smábíla í árekstri og eini bíllinn sem náði „Top Safety Pick“- einkunninni var Chevrolet Spark. Bílarnir Mazda2, Kia Rio, Toyota Yaris og Ford Fiesta fengu einkunnina „Marginal“.

Bílarnir Nissan Versa, Hyundai Accent, Fiat 500, Honda Jazz, Toyota Prius C og Mitsubishi Mirage fengu hinsvegar einkunnina „Poor“ og mælir því stofnunin ekki með þeim frá öryggissjónarmiði.

Smáir bíla hafa sína ókosti þegar kemur að öryggi í árekstri og stærri bílar fá almennt hærri einkunn en þeir smáu. Þó eru dæmi um að þeir standi sig vel, eins og í dæmi Chevrolet Spark. 

Hér sést hve farþegarýmið er heilt eftir áreksturinn.





×