Veiði

Viðrar illa fyrir fyrsta veiðidaginn í Þingvallavatni

Karl Lúðvíksson skrifar
Það er ennþá mikill ís á vötnum víða á landinu en hann fer vonandi hrattþegar það loksins hlánar
Það er ennþá mikill ís á vötnum víða á landinu en hann fer vonandi hrattþegar það loksins hlánar
Páskahretið virðist ætla að gera lítið úr öllum plönum veiðimanna og spáin lítur ekki vel út nema á norðausturlandi.

Það eru margir veiðimenn búnir að setja sig í stellingar til að mæta í opnun fyrsta veiðidags í Þingvallavatni á sunnudaginn en veðurspáin hlýtur að draga úr áhuganum hjá flestum nema þeim allra hörðustu.  Spáin frá Veðurstofunni er Suðvestan 10-15 m/s og él, en heldur hægari og léttskýjað á Norðausturlandi. Hiti 0 til 5 stig sem er ekki beinlínis skemmtilegt veiðiveður.  Það lítur því úr fyrir að það verði frekar fámennt við vatnið á þessum fyrsta degi en við megum samt eiga von á að fá einhverjar fréttir því veður bítur ekki hörðustu vorveiðimennina.

Annars hafa fréttir af sjóbirtingsveiði verið góðar síðustu daga og það má reikna með því að þar sem veðrið verður í lagi verði veiðin áfram góð.  Svo styttist í næstu opnun sem beðið er eftir en það er opnun Elliðavatns en þar hefst veiði næsta fimmtudag og síðan opna flest öll vötn 1. maí en nokkur á norðurlandi aðeins síðar.  






×