Veiði

75 ára afmælisfagnaður SVFR

Karl Lúðvíksson skrifar
Stangaveiðifélag Reykjavíkur verður 75 ára laugardaginn 17. maí nk. og af því tilefni verður boðið upp á skemmtilega og fjölbreytta viðburði næstu vikur.

Veislan hefst með Veiðikvöldi í dalnum á þriðjudagskvöld þar sem urriðaveiðin í Laxá í Mývatnssveit verður kynnt. Yfirlit yfir dagskrána er nú aðgengilegt á vef SVFR og því vissara að grípa dagbókina og færa inn þær uppákomur sem hugurinn girnist. Rétt er að vekja athygli á því að síðasta opna hús vetrarins verður föstudagskvöldið 9. maí í Rafveituheimilinu og verður mikið um dýrðir.

Þriðjudaginn 29. Apríl:  Veiðikvöld í dalnum, SVFR í Elliðaárdal kl. 20

Miðvikudagur 30.apríl: Hnýtingarkvöld í dalnum, SVFR í Elliðaárdal kl. 20.

Föstudaginn 9. maí: Opið hús, Rafveituheimilinu í Elliðaárdal kl. 20

Mánudaginn 12. maí: Kastnámskeið fyrir SVFR-konur  hefst, í Elliðaárdal kl. 20.

Þriðjudaginn 13. maí:  frh. Kastnámskeið fyrir SVFR- konur, í Vífilsstaðavatni 20

Laugardaginn 17. maí: Afmælisveisla SVFR – kl. 13-16 í Elliðaárdal

Enginn félagsmaður SVFR ætti að láta sig vanta í 75 ára afmælisveislu félagsins. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá við hæfi allrar fjölskyldunnar, dregið verður í veiðileyfa-happdrætti þar sem félaganúmer þeirra sem greitt hafa félagsgjöldin gildir sem miði.  Kastkeppni fer fram á flötinni við höfuðstöðvar SVFR, fluguhnýtingarmeistarar sýna snilli sýna og gefa góð ráð, boðið verður upp á grillaðar pylsur og tilheyrandi, farið verður í ratleik og loks mun Ásgeir Heiðar leiða gesti í fróðlegri göngu meðfram Elliðaánum. Veiði og vatn verður þar í aðalhlutverki eins og gefur að skilja.  

 






×