Veiði

Síðasta Opna hús vetrarsins hjá SVFR

Karl Lúðvíksson skrifar
Á morgun föstudag er síðasta Opna Hús vetrarins hjá SVFR og af því tilefni bjóða Skemmtinefnd SVFR og Kvennadeild alla velkomna í glæsilegan vorfagnað í Rafveituheimilinu.

Dagskráin hefst klukkan 20:00 og er mikið í boði fyrir félagsmenn og gesti þeirra sem endra nær en Happahylurinn sem er fastur liður á þessum kvöldum er sérstaklega glæsilegur en heildarverðmæti vinninga er hátt í hálf milljón króna.  Vinningaskráin lítur annars svona út:

Langá 1 stöng í einn dag - 70.800 krónur

Aquaz vöðlur frá Árvík - 54.900 krónur

Laxárdalur 1 stöng í tvo daga - 52.800 krónur

Mývatnssveit 1 stöng í tvo daga - 52.800 krónur

Gjafakort frá Veiðivörum - 50.000 krónur

Vélsleðaferð fyrir 2 á Langjökul - 38.000 krónur

Varmá 2 stangir í einn dag - 27.200 krónur

Flugubox frá Kröflu (2 stykki) - 22.400 krónur

Veiðikortið (2 stykki) - 13.800 krónur

Flugubox frá Frances.is - 10.593 krónur

Veiðibox frá Rapala (2 stykki) - 14.000 krónur

Bókin Ofurlaxar og aðrir minni - 3.800 krónur

Önnur dagskrá er eftirfarandi:

Hítará - Reynir Þrastarson kemur og fer yfir helstu veiðistaði í þessar margrómuðu perlu.

Elliðaár - Ólafur E. Jóhannsson mætir og fer yfir þessa eftirsóttu á sem er einstök á heimsvísu.

5 uppáhalds - Þórdís Klara Bridde kemur og segir frá sínum uppáhalds veiðistöðum.

Happahylurinn - Vöðlur, veiðileyfi, flugur, línur, veiðijakkar og margt fleira verður í happahyl kvöldsins sem verður sá veglegasti til þessa.

Myndagetraun - verður að sjálfsögðu á sínum stað.

Við mælum með því að allir mæti tímanlega til þess að ná sætum og koma sér vel fyrir áður en formleg dagskrá hefst.














×