Veiði

Flott svæði og fallegir urriðar

Karl Lúðvíksson skrifar
Eitt af best geymdu leyndarmálum fluguveiðimanna á norðurlandi eru svæðin við Hraun og Syðra Fjall í Laxá í Aðaldal en þau hafa fengið frekar litla kynningu hingað til.

Stangaveiðifélag Akureyrar hefur þessi svæði í umboðssölu og eru laus leyfi þegar komin á vefinn hjá SVAK.  Svæðin eru sérstaklega skemmtileg fluguveiðisvæði með breiðum og litlum straumbugum þar sem gjarnan má hitta á urriða í ætileit en mjög auðvelt er að sjá fiskinn á breiðunum þegar hann kemur upp í fluguna.  Svæðið er stórt og þar sem það eru aðeins tvær stangir á hvoru svæði er rúmt um veiðimenn og feykinóg af stöðum til að velja úr.  Algeng stærð á urriðanum er 2-4 pund en inn á milli má þo sjá stærri fiska.  í byrjun tímabilsins er algengast að nota straumflugur en þegar líður á fara litlar púpur og þurrflugur að gefa best enda er fiskurinn þá kominn í nægt æti og verður oft sérstaklega vandfýsinn á agn.  Þá er um að gera að skipta oft um flugu eða skoða vel hvaða fluga er að klekjast út á yfirborðinu og finna eina í boxinu sem líkist henni best.  Verðið á leyfunum er mjög gott eða 4.400 kr á stöng fyrir hálfann dag.  Veiði hefst á þessum svæðum 2. júní og það er oft besti tíminn þó svo að veiðin sé að öllu jöfnu góð allt tímabilið.
 
 
 
 
 
 





×