Báru vitni frá Dubai Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 14. maí 2014 12:03 Vísir/GVA
Tvö vitni frá Dubai gáfu skýrslu í gegnum síma í við aðalmeðferð í Aurum Holding-málinu sem var framhaldið í dag. Þá greinir nokkuð á um hvenær hafi orðið ljóst að ekki yrði af kaupum á hlutafé í Aurum Holding. Mennirnir tveir, þeir Nik-hil Sen-gupta og Taw-hid Abdullah, gáfu vitnaskýrslur sínar í gengum síma en áður hafði verið deilt um það fyrir dómnum hvort þeim yrði gert að koma til Íslands til að gefa skýrslur sínar. Taw-hid Abdullah var aðalhluthafi og framkvæmdastjóri félagsins Damas sem átti í viðræðum við Baug og Aurum Holding um kaup á hlut í Aurum Holding um vorið 2008. Hann sagði að ekki hefði verið komist að neinu bindandi samkomulagi um kaupin í Aurum Holding og stjórn Damas hefði á endanum ákveðið að fara ekki í frekari fjárfestinar í Evrópu. Hann var nokkuð óljós varðandi nákvæmar tímasetingar hvað varðaði slit viðræðnanna. Nik-hil Sen-gupta var bankastarfmaður í Dubai og átti þátt í því að kynna Aurum Holding fyrir Damas. Hann sagði að viðræðunum hefði verið hætt í lok september eða byrjun október þegar bankakreppan hefði hafist á Íslandi. Þá hefðu bæði íslenskir bankar og Aurum Holding verið komin í veruleg fjárhagsvandræði. Engin formleg slit hefðu verið á viðræðunum en þeim verið sjálfhætt á þessu stigi. Báðir sögðu að verðið á Aurum, 100 milljónir sterlingspunda eða jafnvirði 19 milljarða íslenskra króna miðað við gengi í dag, hefði komið frá félaginu sjálfu og verið forsendur samningaviðræðna í upphafi. Í málinu eru þeir Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, Jón Ásgeir Jóhannesson fjárfestir, Magnús Arnar Arngrímsson og Bjarni Jóhannesson, sem báðir voru starfsmenn Glitnis, ákærðir fyrir umboðssvik vegna sex milljarða króna láns í júlí 2008 sem Glitnir veitti félaginu FS38 ehf. sem var í eigu Pálma Haraldssonar, vegna kaupa á félaginu Aurum Holdings Ltd. Sérstakur saksóknari telur að hlutabréfin í Aurum Holdings Ltd. hafi verið keypt á yfirverði. Þannig hafi stjórnendur og starfsmenn Glitnis misnotað aðstöðu sína hjá Glitni með lánveitingunni til FS38 ehf. Pálma og Jóni Ásgeiri til hagsbóta. Sakborningar fjórir neita allir sök í málinu. Síðasti til að gefa skýrslu fyrir hádegi er maður að nafni Jeff Blue sem var framkvæmdastjóri Baugs í London og munu vitnisburðir halda áfram fram eftir degi. Fleiri erlend vitni eiga eftir að koma fyrir dóminn ásamt mörgum fyrrverandi stjórnarmönnum Glitnis sem Hæstiréttur gerði að gefa skýrslur. Það gerði Hæstiréttur eftir að dómari málsins í héraðsdómi hafði úrskurðað að þeir hefðu engin bein tengsl við málið og þyrftu því ekki að koma fyrir dóminn.
Aurum Holding málið Tengdar fréttir Fá að bera vitni símleiðis frá Dubai Dómari í Aurum málinu hefur úrskurðað að heimilt sé að taka símaskýrslu af tveimur vitnum sem búsett eru í Dubai. Þá var kröfu sérstaks saksóknara um að fá að taka skýrslu af fleiri vitnum, hafnað. 11. apríl 2014 12:00 Jón Ásgeir: „Greinilegt að það er ekki verið að rannsaka málið til sýknu“ Aðalmeðferð Aurum-málsins heldur áfram í Hérðasdómi Reykjavíkur. 4. apríl 2014 10:41 Starfsmaður Glitnis vildi að farið yrði varlega við lánveitingu vegna Aurum Mikið magn af tölvupóstum liggur fyrir í málinu sem bornir voru undir hlutaðeigandi og lýsa oft og tíðum skrautlegum samskiptum milli manna í tengslum við málið. 4. apríl 2014 19:29 Fyrsti dagur Aurum-málsins: Lárus Welding segir hvatir embættis sérstaks saksóknara sér ráðgátu Verjendur gagnrýndu sérstakan saksóknara fyrir að halda að sér gögnum. Sérstakur spurði Lárus ítarlega út í ferli við lánveitingu og áhættu fyrir Glitni. 3. apríl 2014 13:01 Kannast ekki við að hafa veitt samþykki fyrir Aurum Holding-láninu Aðalmeðferð í Aurum-málinu hélt áfram í dag. Nú fyrir hádegi hafa verið teknar skýrslur af þáverandi meðlimum áhættunefndar Glitnis en meðal þeirra var Rósant Már Torfason, fyrrverandi fjármálastjóri bankans. 7. apríl 2014 11:24 Framhald aðalmeðferðar í Aurum-málinu Framhald aðalmeðferðar í Aurum Holding-málinu svokallaða heldur áfram í dag. 14. maí 2014 09:46 Töldu viðskiptalegar forsendur að baki Aurum láninu Þriðji dagur aðalmeðferðar Aurum Holding-málsins var í dag þar sem meðal annars voru teknar skýrslur af starfsmönnum Glitnis, Kaupþings og Baugs. 7. apríl 2014 19:44 Var trúnaðarvinur Lárusar Jón Sigurðsson fyrrverandi forstjóri FL Group og stjórnarmaður í Glitni gaf skýrslu fyrir héraðsdómi í Aurum málinu í dag. Þá fór fram munnlegur málflutningur um skýrslur ákveðinna vitna fyrir dómi. 8. apríl 2014 21:52 Mest lesið Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Sjá meira
Fá að bera vitni símleiðis frá Dubai Dómari í Aurum málinu hefur úrskurðað að heimilt sé að taka símaskýrslu af tveimur vitnum sem búsett eru í Dubai. Þá var kröfu sérstaks saksóknara um að fá að taka skýrslu af fleiri vitnum, hafnað. 11. apríl 2014 12:00
Jón Ásgeir: „Greinilegt að það er ekki verið að rannsaka málið til sýknu“ Aðalmeðferð Aurum-málsins heldur áfram í Hérðasdómi Reykjavíkur. 4. apríl 2014 10:41
Starfsmaður Glitnis vildi að farið yrði varlega við lánveitingu vegna Aurum Mikið magn af tölvupóstum liggur fyrir í málinu sem bornir voru undir hlutaðeigandi og lýsa oft og tíðum skrautlegum samskiptum milli manna í tengslum við málið. 4. apríl 2014 19:29
Fyrsti dagur Aurum-málsins: Lárus Welding segir hvatir embættis sérstaks saksóknara sér ráðgátu Verjendur gagnrýndu sérstakan saksóknara fyrir að halda að sér gögnum. Sérstakur spurði Lárus ítarlega út í ferli við lánveitingu og áhættu fyrir Glitni. 3. apríl 2014 13:01
Kannast ekki við að hafa veitt samþykki fyrir Aurum Holding-láninu Aðalmeðferð í Aurum-málinu hélt áfram í dag. Nú fyrir hádegi hafa verið teknar skýrslur af þáverandi meðlimum áhættunefndar Glitnis en meðal þeirra var Rósant Már Torfason, fyrrverandi fjármálastjóri bankans. 7. apríl 2014 11:24
Framhald aðalmeðferðar í Aurum-málinu Framhald aðalmeðferðar í Aurum Holding-málinu svokallaða heldur áfram í dag. 14. maí 2014 09:46
Töldu viðskiptalegar forsendur að baki Aurum láninu Þriðji dagur aðalmeðferðar Aurum Holding-málsins var í dag þar sem meðal annars voru teknar skýrslur af starfsmönnum Glitnis, Kaupþings og Baugs. 7. apríl 2014 19:44
Var trúnaðarvinur Lárusar Jón Sigurðsson fyrrverandi forstjóri FL Group og stjórnarmaður í Glitni gaf skýrslu fyrir héraðsdómi í Aurum málinu í dag. Þá fór fram munnlegur málflutningur um skýrslur ákveðinna vitna fyrir dómi. 8. apríl 2014 21:52