Opið bréf til Þingvallanefndar frá Landssambandi Stangaveiðifélaga Karl Lúðvíksson skrifar 28. maí 2014 13:38 Bjarki Már Jóhannesson með stórurriða úr Þingvallavatni sem var sleppt að lokinni viðureign
Landssamband Stangaveiðifélaga (LS) sendi meðfylgjandi opið bréf til Þingvallanefndar þar sem LS lýsir ánægju sinni með breytingar á veiðireglum sem gerðar voru og hvetur nefndina til frekari dáða. Opið bréf til Þingvallanefndar Að gefnu tilefni lýsir stjórn Landssamband stangaveiðifélaga yfir ánægju með ráðstafanir Þingvallanefndar og Þjóðgarðsvarðar um vorveiði á urriða fyrir landi Þjóðgarðsins á Þingvöllum nú í vor. Þær eru til þess fallnar að bæta umgengni í þjóðgarðinum, auka ánægju stangaveiðimanna og koma í veg fyrir óskynsamlegt dráp á stórurriða. Það er mikið ánægjuefni hve vel hefur tekist til um endurreisn urriðastofnsins í Þingvallavatni og það er mikilvægt að stofninn sé nytjaður samkvæmt bestu faglegri ráðgjöf sem byggð er á þekkingu. Þingvallavatn og umhverfi þess er dýrmætt, og ríkar ástæður til að um það sé sómasamlega gengið – af virðingu við einstakt vistkerfi þess. Vonandi munu einnig bera árangur aðgerðir til að skapa að nýju hrygningarskilyrði fyrir urriðann við útfall úr Þingvallavatni, og hefur þá til muna verið bætt það tjón sem virkjunarframkvæmdir í Sogi ollu þessum sérstæða stofni. Nauðsynlegt er að fjalla heildstætt um vistkerfi Þingvallavatns og stýra umgengni og veiði á samræmdan hátt. Stjórn LS hvetur veiðiréttarhafa til þess að fjalla um markvissa nýtingu veiðihlunninda í Þingvallavatni á vettvangi veiðifélags vatnsins, svo sem lög gera ráð fyrir. Í umræðu um urriðaveiði í Þingvallavatni í vor hefur veiðisiðferði stangaveiðimanna borið á góma og svokölluð „veiða-sleppa-aðferð“. Það verður hver og einn að taka afstöðu til þess hvort honum hugnast þessi umgengni við veiðibráð, líki mönnum hún ekki taka þeir eðlilega ekki þátt í slíku. Þetta háttalag hefur hins vegar reynst ágæt aðferð til að stemma stigu við óæskilegu drápi á laxfiskum þar sem þess er þörf vegna afkomu stofna. Auk þess að eðlilegt er talið að hlífa urriðanum við drápi vegna ástands stofnsins, liggja fyrir staðfestar upplýsingar um að stórurriði úr Þingvallavatni sé ekki hæfur til neyslu vegna kvikasilfursinnihalds. Umfjöllun um veiði í þjóðgarðinum síðustu misseri hefur hrundið af stað umræðu sem ber að fagna. Stjórn LS hvetur stangaveiðimenn til að fylgja settum reglum og sýna gott fordæmi með góðri umgengni. Fyrir hönd stjórnar LS, Viktor Guðmundsson formaður.
Stangveiði Mest lesið Er meiri veiði núna í Eystri Rangá en 2013 Veiði Langá hækkaði um 30 sm í nótt Veiði Margir stórir fiskar sagðir á ferli í Varmá Veiði Veiðin komin í gang á heiðunum Veiði Opin fyrirlestur um hreindýraveiðar Veiði Elliðaárnar: 31 lax á fyrsta degi Veiði Má skjóta bleikju með haglabyssu? Veiði Fiskur í Hlíðarvatni í miklu fæði og hunsar veiðimenn Veiði Myndskeið af risalaxinum í Laxá í Kjós Veiði 48 laxa holl í Kjarrá Veiði