Veiði

Vænar bleikjur farnar að taka flugurnar í Þingvallavatni

Karl Lúðvíksson skrifar
Sigurður Grímsson landaði þessari flottu bleikju úr Þingvallavatni fyrir tveimur dögum.
Sigurður Grímsson landaði þessari flottu bleikju úr Þingvallavatni fyrir tveimur dögum. Mynd: Sigurður Grímsson
Nú er urriðinn greinilega farinn í dýpra vatn því hann eru alveg hættur að koma á flugur veiðimanna við Þingvallavatn.

Þetta á sér eðlilegar skýringar og ekkert annað en náttúran sem ræður för en þegar urriðinn hverfur tekur bleikjan við og þeir sem vilja hafa með sér fisk í soðið fagna því að sjá bleikju á línuendanum.  Bleikjan hefur verið að gefa sig meira og meira síðustu dagana og það veit á gott því besti tíminn fer að bresta á.  Bleikjan sem hefur veiðst síðustu daga þykir væn og afskaplega vel haldin enda engin furða á því þegar fæðuframboðið í vatninu er jafn gott og það er.  Veiðin er sem oftast mest í þjóðgarðinum en ágæt veiði hefur líka verið við Arnarfell og Nesjavallamegin en þar var Sigurður Grímsson fyrir fáum dögum og náði þar í flotta bleikju sem fór beint á grillið.  Hún var að sögn veiðimanns afskaplega bragðgóð en bleikjan úr vatninu þykir einmitt vera góð á grillið og nóg er af henni svo það er í góðu lagi að hirða hana.

Murtan er ekki síðri en það hafa margir komist á lagið með að elda hana í heilu lagi á grilli og það þarf ekki annað en að taka úr henni innyflin, salt, pipar og sítrónusafa yfir.  Grilla hana svo á háum hita  þar til hún er vel elduð í gegn.  Þetta er eldunaraðferð sem er mikið notuð á sardínur við miðjarðarhafið og virkar svona líka vel á murtu sem hingað til hefur verið hent aftur í vatnið af veiðimönnum.  Það er kannski kominn tími til að það breytist?






×