Askja á Egilsstöðum Finnur Thorlacius skrifar 23. maí 2014 10:15 Kia cee´d GT.
Bílaumboðið Askja heldur bílasýningu á Egilsstöðum um helgina í samstarfi við BVA – Bílaverkstæði Austurlands sem er sölu- og þjónustuaðili Kia á Austurlandi. Breið fólksbílalína Kia verður til sýnis sem og Mercedes-Benz Citan og Sprinter atvinnubílar sem notið hafa vinsælda. Sýningin verður bæði laugardag og sunnudag milli klukkan 12-16 í sýningarsal BVA. ,,Við erum á ferðinni um landið þessar vikurnar. Um síðustu helgi var Kia sýning á Sauðárkróki og núna ætlum við að heimsækja Egilsstaði. Það er gaman að geta farið á landsbyggðina og boðið upp á bílasýningar. Við finnum fyrir miklu þakklæti og velvild heimamanna með þessar sýningar og það gefur okkur sem að þessu stöndum auðvitað aukinn innblástur,“ segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju, söluumboðs Kia og Mercedes-Benz á Íslandi.
Mest lesið Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Erlent Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Erlent Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Innlent Bjarni fundaði með Guterres Innlent Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Innlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent