Veiði

"Tók 50 mínútur að ná þessum risafisk inn"

Karl Lúðvíksson skrifar
Hrafn H. Hauksson veiddi risaurriða í Varmá í gær
Hrafn H. Hauksson veiddi risaurriða í Varmá í gær
Það hafa nokkrir rígvænir fiskar tekið flugur veiðimanna í Varmá í sumar og í gær voru tveir félagar við ánna og lentu heldur betur í ævintýri.

Hrafn H. Hauksson og félagi hans voru á leiðinni upp að Þingvallavatni með smá viðkomu í Varmá.  Það verður ekki annað sagt en að þeim félögum hafi gengið vel því þeir voru við ánna í þrjá tíma og af því fór einn og hálfur tími í að þreyta fiska, reyndar bara þrjá fiska sem allir voru í svipaðri stærð og sá sem sést hér á myndinni.  Þessi mældist 76 sm langur en er þykkur og sver svo hann er líklega hátt í 15 pund að þyngd.  "Þessi tók á Stöðvarbreiðunni og hann tók flugu sem heitir Glóð og er frá Sveini Þór á Akureyri" sagði Hrafn í samtali við okkur í morgun.  "Við settum í tvo aðra sem voru mjög svipaðir en þeir sluppu báðir sem var kannski ekkert skrítið því við vorum með mjög léttar stangir fyrir línu #3".  Hrafn hefur gert ágæta veiði í Varmá og sérstaklega átti hann gott sumar þar í fyrra en þá náði hann einum 78 sm og nokkrum yfir 70 sm.  Plönin hjá honum í sumar líta einnig afskaplega vel út en hann fer  m.a. í Laxá í Dölum, Stóru Laxá, Hafralónsá, Gljúfurá, Laxá í Ásum og Ytri Rangá.  Einnig ætlar hann að kíkja á Arnarvatnsheiðina og fleiri staði þar sem von er á skemmtilegri silungsveiði.  






×