Veiði

Nýjar veiðitölur frá Landssambandi Veiðifélaga

Karl Lúðvíksson skrifar
Erlendur veiðimaður með fallegan lax úr Blöndu
Erlendur veiðimaður með fallegan lax úr Blöndu
Nýjar veiðitölur detta inn á miðvikudagskvöldum á vefnum hjá Landssambandi Veiðifélaga og það er gaman að fylgjast með því hvernig gengur í ánum.

Þessi byrjun í ár er þó heldur róleg, sérstaklega á Suðvestur- og Vesturlandi þrátt fyrir að snemmgengnir laxar hafi látið sjá sig í mörgum ánum.  Þegar tölurnar eru skoðaðar sést að Blanda trónir á toppnum, ekki bara hvað varðar fjölda heldur einnig veiði pr stöng en aðeins er veitt á 4 stangir þar eins og er.  Kjarrá opnaði vel í vikunni en eftir því var tekið að lítið af laxinum var lúsugur og rólegt er yfir veiðinni í Brennunni og sömu sögu er að segja af hinum bakkanum en Straumarnir eru ekki ennþá farnir í gang.  Haffjarðará opnaði í vikunni ásamt Fnjóská og á morgun hefst veiði í Laxá í Kjós, Elliðaánum, Ytri Rangá og nokkrum ám til viðbótar svo tímabilið fer að komast í fullan gang.  Stór straumur er eftir viku og það er yfirleitt í kringum fyrsta strauminn sem stóru smálaxagöngurnar mæta og þá fara tölurnar hratt upp.  Tölurnar eru fengnar af vef Landssambandi Veiðifélaga www.angling.is

Veiðivatn

Dagsetning

Heildarveiði

Stangafjöldi

Lokatölur 2013

Blanda

18. 6. 2014

88

4

2611

Þverá + Kjarará

18. 6. 2014

62

14

3373

Norðurá

18. 6. 2014

61

12

3351

Haffjarðará

18. 6. 2014

17

6

2158

Laxá í Leirársveit

18. 6. 2014

2

4

1006

 






×