Veiði

Svalbarðsá komin yfir 300 laxa

Karl Lúðvíksson skrifar
Veiðin í Svalbarðsá hefur verið frábær í sumar og áin er komin yfir veiðina í fyrra sem þó þótti afbragðs veiðiár.

Það sem eykur á ánægju þeirra sem hafa heimsótt ánna í sumar er góð meðalþyngd en um 80% af laxinum er vænn tveggja ára lax og ennþá er lax að ganga.  Í gærmorgun veiddust lúsugir laxar í ánni sem gefur til kynna að áin eigi ennþá nóg inni enda ennþá mánuður eftir af veiðitímanum og lax getur verið að ganga í ánna alveg fram í byrjun september.  Þess má geta að Svalbarðsá er aðeins veidd á 2-3 stangir.  Áin er löngu upseld og þeir sem hafa veitt hana í sumar eru þegar farnir ða tryggja sér daga að ári.

Af öðrum veiðisvæðum Veiðifélagsins Hreggnasa má nefna að Laxá í Kjós er komin í 350 laxa en það sem hefur helst hamlað veiðum þar er hraðminnkandi vatn og tregleiki í laxinum til að ganga upp í ánna af frísvæðinu en þar hefur safnast saman mikið af lax og sjóbirting.  Buðga hefur gefið mesta veiði síðustu daga enda virðist hún halda vatni mun betur í þurrkum en Laxá sjálf.  Korpan er að komast í 140 laxa sem er mjög góð veiði í þessari sjálfbæru nettu á og Brynjudalsá er sömuleiðis á pari við sitt meðaltal.






×