Veiði

Eystri Rangá komin í 1520 laxa

Karl Lúðvíksson skrifar
Það hafa margir stórlaxarnir verið dregnir á land úr Eystri Rangá í sumar
Það hafa margir stórlaxarnir verið dregnir á land úr Eystri Rangá í sumar
Veiðin heldur áfram að vera með besta móti í Eystri Rangá þetta sumarið og miðað við að Blanda fari að detta á yfirfall verður toppslagurinn milli Rangánna þetta sumarið.

Það eru litlar líkur á að það verði aðrar ár sem takist á um toppsætið yfir aflahæstu ár landsins en eftir að veiðin í Ytri Rangá fór í gang er veiðin í henni orðinn mjög góð en í báðum Rangánum koma nú 40-60 laxar á dag á hverjum degi svo vikutölurnar í þeim eru ansi fljótar að hækka.  Eystri Rangá stendur í 1520 löxum og verður komin yfir 2000 laxa vel fyrir mánaðarmót með þessu áframhaldi og líklega sú Ytri líka.  Haustveiðin í þeim báðum getur verið sérstaklega drjúg þegar hóparnir af innlendurm veiðimönnum sem þekkja þeir vel mæta í sína árlegu túra.  Nú er eingöngu veitt á flugu í Ytri en maðkveiði verður leyfð í september og þá er nokkuð ljóst að 100 laxa dagar gætu dottið í veiðibókina.  Nýjar tölur koma frá Landssambandi Veiðifélaga á morgun og það verður spennandi að sjá hvernig vikuveiðin hefur þróast og vonandi hafa orðið einhver uppgrip í rólegri ánum.






×