Íslenski boltinn

Mörkin sem telja lítið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jóhann Helgi Hannesson og félagar hans mæta Stjörnunni í kvöld.
Jóhann Helgi Hannesson og félagar hans mæta Stjörnunni í kvöld. Vísir/Daníel
Þór sækir Stjörnuna heim í 15. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Þór og Stjarnan eru í ansi ólíkri stöðu. Stjörnumönnum hefur gengið flest í haginn á tímabilinu. Þeir eru ósigraðir í forkeppni Evrópudeildarinnar og Pepsi-deildinni og geta með sigri í kvöld jafnað FH að stigum á toppi deildarinnar.

Þór er hins vegar í afar erfiðum málum. Eftir tapið gegn Fram í síðustu umferð sitja Þórsarar einir og yfirgefnir á botni deildarinnar, með aðeins níu stig eftir 14 leiki. Þeir eru sem stendur fimm stigum frá fallsæti og tap í kvöld setur þá í enn erfiðari stöðu.

Akureyringar hafa skorað 19 mörk í deildinni - jafnmörg og Víkingur sem situr í þriðja sæti - en vandamálið er að mörkin sem þeir hafa skorað telja mörg hver lítið sem ekki neitt. Hvert mark hjá Þór telur aðeins til 0,47 stiga, samanborið við 1,37 hjá Víkingi og 1,21 hjá Stjörnunni.

Sjö af 19 mörkum Þórs hafa komið í sigurleikjum, tvö í jafnteflisleikjum og tíu í tapleikjum.

Þórsarar hafa fengið á sig fyrsta markið í 11 af 14 leikjum sínum í deildinni og af þessum 11 leikjum hafa þeir tapað níu. Þórsarar hafa aðeins fengið tvö stig úr tapstöðum í sumar; gegn ÍBV á heimavelli og FH á útivelli, en þeir gerðu 1-1 jafntefli í báðum leikjunum.

Níu af 19 mörkum Þórs hafa komið þegar liðið er tveimur eða fleiri mörkum undir. Þrjú af fimm mörkum Jóhanns Helga Hannessonar hafa t.a.m. komið í slíkri stöðu, tvö af þremur mörkum Ármanns Péturs Ævarssonar og bæði mörk Þórðar Birgissonar.

Þórsarar hafa aðeins tvisvar sinnum skorað fyrsta markið í leikjum sumarsins, og þeir unnið í bæði skiptin sem það hefur gerst; 5-2 gegn Fylki og 2-0 gegn KR.

Leikur Stjörnunnar og Þórs hefst klukkan 20:00 í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Eftir leikinn verður svo 15. umferðin gerð upp í Pepsi-mörkunum sem hefjast klukkan 22:00.


Tengdar fréttir

Umfjöllun og viðtöl: Þór - Fram 0-2 | Guðmundur Steinn með tvö

Framarar enduðu fimm leikja taphrinu sína í Pepsi-deild karla í kvöld með því að sækja þrjú stig norður eftir 2-0 sigur á Þórsurum í 14. umferð deildarinnar. Guðmundur Steinn Hafsteinsson skoraði bæði mörk leiksins á síðustu sextán mínútunum en bæði lið enduðu með tíu menn inn á vellinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×