Veiði

2027 laxar komnir á land úr Eystri Rangá

Karl Lúðvíksson skrifar
Eystri Rangá er fyrsta áin til að fara yfir 2000 laxa múrinn í sumar en áin er komin í 2027 laxa eftir kvöldvakt gærdagsins.

Ennþá er lax að ganga í ánna og hann getur gert það alveg fram í nóvember.  Það er ekki óalgengt að veiðimenn í haustveiðinni í september og október veiði nýgengna lúsuga laxa sem eru ekki alltaf eins árs laxar eins og búast mætti við svo seint á tímabilinu.  Það eru jafnvel dæmi um að stórlaxar séu að veiðast lúsugir í byrjun október.  Veiðimenn sem hafa verið laxlausir í sumar eru þegar farnir að skoða lausa daga í Ytri og Eystri Rangá í haust til að ná í lax sem margir plana að nota til hátíðarbrigða.  Á myndinni má sjá einn af þeim stórlöxum sem hafa komið upp í Eystri Rangá en þarna er veiðimaðurinn með 94 sm hæng sem veiddist á Bátsvaði.

Ekki hafa borist uppfærðar tölur frá Landssambandi Veiðifélaga en reikna má með því að margar árnar séu farnar að gefa lítið og kannski sérstaklega þær sem opnuðu snemma í sumar.  Árið hefur verið erfitt víða en veiðimenn horfa engu að síður með bjartsýni til komandi árs og von um að göngurnar verði betri en í ár, margfalt betri.






×