Meira af Reading og Leeds því að Arctic Monkeys lokuðu Leeds hluta hátíðarinnar á sunnudaginn og markaði það lok tónleikaferðar þeirra til að fylgja plötunni AM á eftir en fyrstu tónleikarnir til að kynna plötuna voru á Glastonbury í júlí 2013, tveimur mánuðum áður en platan kom út. Arctic Monkeys stefna því á að taka sér smá pásu áður en að þeir fara að vinna að næstu plötu.
Segja má að MTV sjónvarpsstöðin hafi gert sig að fífli í gærkvöldi þegar að stöðin verðlaunaði bestu tónlistarmyndbönd ársins. En í flokknum besta rokkmyndbandið var það Ný-Sjálenska söngkonan Lorde sem fékk verðlaunin fyrir myndbandið við lagið Royals. Samfélagsmiðlar hreinlega sprungu og þrátt fyrir að margir hrósuðu laginu var valið harðlega gagnrýnd þar sem lagið flokkast tæplega til rokktónlistar. En aðrar sveitir sem voru tilnefndar í þessum flokki voru Arctic Monkeys, The Black Keys og Linkin Park.

Fyrrum Stone Temple Pilots söngvarinn Scott Weiland íhugar nú að kæra slúðurmiðilinn TMZ eftir að þar birtust fréttir þess efnis að söngvarinn hefði verið handtekinn fyrir að stela rakvélarblöðum og að hafa crystal meth í förum sínum. Þrátt fyrir að söngvarinn hafi lengi barist við fíknina er hann nú ekki alveg búinn að missa það enda var það alls ekki hann sem var handtekinn heldur einstaklingur að nafni Jason Hurley sem ákvað að gefa upp nafn söngvarans þegar að hann var handtekinn og ekki náðist að leiðrétta miskilninginn áður en að TMZ setti fréttina á vefsíðu sína.
Menningarnæturtónleikar X977 og Bar 11 fóru fram með pompi og prakt í portinu á bakvið Bar 11 á laugardaginn. Kaleo, Sólstafir, Dimma, Agent Fresco, Emmsjé Gauti, Reykjavíkurdætur, Vio, Úlfur Úlfur, Art is Dead, Endless Dark og Major Pink komu fram og stóðu allar sveitir sig frábærlega. Við þökkum að sjálfsögðu öllum sem lögðu leið sína á Bar 11 á laugardaginn.