Hljómsveitin Foo Fighters heldur áfram að setja skilaboð á Twitter síðu sína um fyrirhugaða tónleika í Bretlandi. En sveitin er stödd þar í landi til að koma fram á lokaathöfn íþróttaleika sem fara nú fram í borginni. Á síðustu dögum hefur hljómsveitni sett fjölmörg skilaboð inn á samfélagsmiðla sem benda til þess að Foo Fighters muni einnig koma fram á minni tónleikum. Nú halda margir því fram að sveitin muni koma óvænt fram á litlum klúbbatónleikum í Brighton eftir að þeir settu textabrot úr Queen laginu Brighton Rock á Twitter síðu sína.
Nú styttist óðum í Októberfest SHÍ sem hefst fimmtudaginn 11.september. Hátíðin stendur yfir í þrjá daga og eru aðeins örfáir miðar eftir en miðasala fer fram á midi.is. Á meðal þeirra hljómsveita sem koma fram á hátíðinni má nefna Mammút, Agent Fresco, Kiriyama Family, Vök, Ourlives, Ojbarasta, Dikta og fleiri og fleiri.
Írski tónlistarmaðurinn Damien Rice hefur nú tilkynnt um útgáfu fyrstu plötu sinnar í átta ár. Platan hefur fengið nafnið „My Favourite Faded Fantasy“ og er settur útgáfudagur 3.nóvember en það er enginn annar en Rick Rubin sem próduserar plötuna ásamt Damien Rice. En platan er bæði tekin upp í Los Angeles sem og hér á landi.