Veiði

11 ára veiðistelpa með veiðidellu á háu stigi

Karl Lúðvíksson skrifar
Sylvía með flottann sjóbirting úr Elliðaánum
Sylvía með flottann sjóbirting úr Elliðaánum Mynd: Kjartan Lorange
Veiðimenn þurfa ekki að hafa langa reynslu eða háan aldur til að hafa veiðidellu á háu stigi og það er fátt eins ánægjulegt og að sjá unga krakka stunda veiði af ákefð.

Það er einmitt áhugi og ákefð sem draga Sylvíu Lorange að bakkanum á sumrin enda nýtur hún þess að eiga föður sem er einnig haldinn veiðidellu á háu stigi en faðir hennar er Kjartan Lorange.  Þrátt fyrir að vera ekki nema 11 ára gömul hefur hún veitt víða og er hörku dugleg við bakkann.  Núna í sumar er hún búin að fara 3 daga í Elliðaárnar, einn í Korpu og tvo daga í sjóbleikju í Hamarsá og Bjarnardalsá og alltaf fengið fisk.  17. ágúst fékk hún fyrstu flugufiskana sína í Korpu 60 sm Sjóbirting og 55 sm lax 19.  Í ágúst lenti hún svo í sjóbirtingsveislu í Elliðaánum og landaði 13 birtingum á Breiðunni og úr Sjávarfossi og einum lax, bæði á flugu og maðk.  "Betri veiðifélaga er erfitt að finna þar sem sanngirni, gleði og þakklæti fyrir því sem veiðigyðjan skammtar er alltaf í fararbroddi. Þetta á að vera skemmtilegt en ekki of kalt eru hennar einkunnarorð og alltaf fylgir brosið með" segir Kjartan Lorange pabbi Sylvíu.  "Stelpur eru ekki síðri veiðimenn en karlmenn og sjá oft hlutina í öðru ljósi en við karldýrin, ég er búinn að læra margt eftir að þessi frábæra stelpa byrjaði að veiða með mér og hún vonandi líka.  Fleiri stelpur í sportið okkar, það getur bara batnað við það!"  Með fréttinni eru nokkrar flottar myndir af Sylvíu í veiði og það er klárt að við eigum eftir að frétta meira af þessari efnilegu veiðikonu í framtíðinni.






×