Nú styttist í fyrsta Jack Live kvöld vetrarins sem verður á Gauknum laugardagskvöldið 20.september næstkomandi. Þær sveitir sem koma fram að þessu sinni eru Kontinuum,Caterpillarmen, Future Figment og Ottoman og er miðaverð litlar 1000kr auk þess sem að Jack verður á góðu tilboði.
Rokkdúettinn Royal Blood hefur slegið í gegn í allan heim en sveitin var nýverið stödd í Þýskalandi og þarlend útvarpsstöð fékk hljómsveitina til að spila ábreiðu í útvarpinu og varð lagið „West Coast“ með Lana Del Rey fyrir valinu. Flutningurinn þóttist takast frábærlega.

Forsvarsmenn Glastonbury hafa nú tilkynnt að miðasala fyrir hátíðina sem fer fram á næsta ári muni hefjast þann 5. október. Til þess að geta keypt miða þarf þó fyrst að skrá sig á síðunni www.glastonburyregistration.co.uk en talið er að miðarnir munu seljast upp samdægurs þó svo að ekki sé búið að tilkynna eina einustu hljómsveit sem mun koma fram á hátíðinni á næstar ári. Veðbankar eru þó enn með Oasis ofarlega á lista yfir þær hljómsveitir sem eru taldar líklegar til að koma fram á hátíðinni en margir aðdáendur vona einmitt eftir því að sveitin komi aftur saman í tilefni þess að platan (What‘s the Story) Morning Glory kom út fyrir 20 árum síðan.
Dagskrá Iceland Airwaves hefur nú verið opinberuð og því ekki seinna vænna fyrir hátíðargesti að byrja að skipuleggja sig. En dagskránna má sjá hér.