Veiði

Topp 10 listinn yfir aflahæstu laxveiðiárnar

Karl Lúðvíksson skrifar
Ytri Rangá er í toppsætinu yfir aflahæstu árnar í sumar.  Hér er veiðimaður með lax úr Ægissíðufossi
Ytri Rangá er í toppsætinu yfir aflahæstu árnar í sumar. Hér er veiðimaður með lax úr Ægissíðufossi
Þegar topp 10 listinn yfir aflahæstu laxveiðiárnar er skoðaður sést vel hvaða ár búa að sterkum stofni af laxi sem dvelur að jafnaði tvö ár í sjó.

Ytri Rangá tók toppsætið nýlega frá Eystri Rangá en veiðin í þeirri Eystri er orðin heldur lítil en þar kemur á  móti en laxinn gekk miklu fyrr í sæmilegu magni í hana en í Ytri Rangá.  Ytri Rangá býr svo vel að því seinni part veiðitímabilsins að lax er ennþá að ganga og heldur það veiðitölum uppi ásamt því að áin hleður sig vel og veiðimenn almennt í fiski á flestum stöðum, líka á neðstu svæðunum.  Aðrar ár á listanum nema Norðurá búa að góðum stofni lax sem dvelur tvö ár í sjó og er að ganga í árnar 75 sm og stærri.  Árnar sem búa ekki svo vel að hafa þetta eru allar mun neðar á listanum og eins og áður hefur verið fjallað um fengu þær sinn skerf af aflabrest í sumar vegna skorts á eins árs laxi.  Topp 10 listinn er annars hér fyrir neðan og listann í heild sinni má finna hjá www.angling.is



VeiðivatnDagsetningHeildarveiðiStangirVeiði 2013
Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki.24. 9. 20142671205461
Eystri-Rangá24. 9. 20142430184797
Blanda24. 9. 20141931142611
Miðfjarðará24. 9. 20141684103667
Þverá + Kjarará17. 9. 2014Lokatölur 1195143373
Laxá á Ásum24. 9. 2014Lokatölur 100621062
Selá í Vopnafirði24. 9. 2014100471664
Norðurá17. 9. 2014Lokatölur 924153351
Laxá í Aðaldal24. 9. 2014849181009
Haffjarðará17. 9. 2014Lokatölur 82162158





×