Veiði

12 kg stórlax úr Nessvæðinu í Aðaldal

Karl Lúðvíksson skrifar
Hilmar Hansson með 12 kg lax úr Laxá í Aðaldal
Hilmar Hansson með 12 kg lax úr Laxá í Aðaldal
Það er löngur orðið ljóst eftir þetta sumar að skortur á stórlaxi á þeim veiðisvæðum þar sem hann er helst að finna hefur verið lítill.

Hver stórlaxinn á fætur öðrum hefur verið dreginn upp úr Laxá í Aðaldal og enn fleiri sloppið.  Heildarveiðin úr ánni í sumar er komin í 819 laxa sem er mjög góð veiði og sérstaklega með því teknu tilliti að á metárinu í fyrra veiddust 1009 laxar svo það munar ekki miklu að áin jafni sumarið 2013.  Það kemur heldur ekki á óvart að meðalþyngdin í sumar er búin að vera feyknagóð í Laxá og á svæðinu kenndu við Nes hafa líklega fleiri tröllvaxnir laxar komið á land heldur en undanfarin ár.  Einn stórlax bættist í veiðibækurnar í gær þegar hinn góðkunni stórlaxaveiðimaður Hilmar Hansson hjá Veiðiflugum landaði 12 kg laxi í Hólmavaðsstíflu á Night Hawk númer 10.  Hilmar fékk fleiri laxa sem flokka mættu sem stórlaxa en þessi flottu hængur sem sést á myndinni var þó sá stærsti sem kom á land.






×