2,5 milljarðar í olíuleit á Drekasvæði á næsta ári Kristján Már Unnarsson skrifar 15. október 2014 19:15
Sérleyfishafar á Drekasvæðinu áforma að verja tveimur og hálfum milljarði króna til olíuleitar á Drekasvæðinu á næsta ári. Í fjárlagafrumvarpi norsku ríkisstjórnarinnar, sem nú liggur fyrir Stórþinginu, er gert ráð fyrir að Norðmenn greiði fjórðung. Fyrstu tveimur sérleyfunum til leitar og vinnslu olíu á Drekasvæðinu var úthlutað í ársbyrjun 2013 og í byrjun þessa árs var þriðja sérleyfið afhent en rekstraraðili þess er kínverska ríkisolíufélagið CNOOC. Breska félagið Faroe Petroleum og kanadíska félagið Ithaca fara fyrir hinum leyfunum en það er sammerkt þeim öllum að norska ríkisolíufélagið Petoro er með 25 prósenta hlut. Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri, í miðið, afhenti fyrstu leyfin í janúar 2013 að viðstöddum Steingrími J. Sigfússyni atvinnuvegaráðherra og Ola Borten Moe olíumálaráðherra Noregs.Vísir/Stefán Leitarhóparnir þrír áforma á næstu vikum að ákveða hversu viðamikil olíuleitin verður á næsta ári. Samkvæmt upplýsingum Stöðvar 2 stefnir í að umfangið verði verulegt og að leitað verði fyrir vel á þriðja milljarð króna. Niðurstöðuna má nú þegar að nokkru leyti sjá í fjárlagafrumvarpi norsku ríkisstjórnarinnar en þar er leitaráætlun næsta árs kynnt um leið og óskað er fjárheimildar fyrir Petoro Iceland. Þar er gert ráð fyrir að norska ríkið verji á næsta ári um 500 milljónum íslenskra króna til olíuleitar í lögsögu Íslands, með heimild um að skuldbinding norska ríkisins geti orðið allt að 630 milljónir króna. Sérleyfin þrjú á Drekasvæði. Í ljósi þess að Norðmönnum er ætlað að greiða fjórðung kostnaðar má af þessu sjá að þeir gera ráð fyrir að allt að tveimur og hálfum milljarði króna verði kostað til olíuleitar á Drekasvæðinu á næsta ári. Íslendingar geta því búist við að sjá rannsóknarskip koma við í íslenskum höfnum næsta sumar, í líkingu við flotann sem sást á Akureyri fyrir tveimur árum, en í greinargerð norska fjárlagafrumvarpsins kemur fram að gera á bergmálsmælingar, kaupa jarðfræðigögn og jafnvel afla sýna af hafsbotni. Olíurannsóknaskipið Nordic Explorer, ásamt þremur fylgdarskipum, sótti þjónustu til Akureyrar sumarið 2012, vegna rannsókna á Drekasvæðinu.Mynd/N4
Olíuleit á Drekasvæði Tengdar fréttir Þriðja olíuleitarleyfið á Drekann veitt í dag Þriðja sérleyfinu til leitar og vinnslu olíu á Drekasvæðinu verður formlega úthlutað við athöfn sem hefst núna klukkan tvö í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík. 22. janúar 2014 13:30 Eyfirðingar þjónusta olíuleitarflota af Drekasvæðinu Floti fjögurra olíurannsóknarskipa kom inn til Akureyrar í dag af Drekasvæðinu til að sækja sér vistir og þjónustu sem og til áhafnaskipta. Eyfirðingar fá þarna forsmekkinn af þeim umsvifum sem vaxandi olíuleit í Norðurhöfum gæti skapað á Íslandi á næstu árum. Rannsóknarskipið Nordic Explorer fer fyrir flotanum en með því eru þrjú fylgdarskip, tvö færeysk og eitt íslenskt, Valberg VE. 10. júlí 2012 20:00 Reyðarfjörður valinn sem olíubær Íslands Eykon Energy hefur valið Reyðarfjörð sem þjónustumiðstöð fyrir bæði olíuleit og olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar segir þetta skapa gríðarleg tækifæri. 11. maí 2014 19:15 CNOOC vill flýta borun í Drekann Fulltrúar kínverska olíufélagsins CNOOC kynntu samstarfsaðilum sínum í dag verkáætlun sem miðar við að boranir hefjist á Drekasvæðinu mun fyrr en áður var gert ráð fyrir. 12. júní 2014 19:15 Vonast til að olíuframleiðslan hefjist eftir 7-8 ár Olíuframleiðsla á landgrunni Íslands gæti hafist eftir sjö til átta ár og fyrsti borpallurinn komið eftir þrjú til fjögur ár. Þetta segir forstjóri skoska olíufélagsins Faroe Petroleum, sem nú er orðinn rétthafi fyrsta olíuvinnsluleyfis í lögsögu Íslands. Olíumálaráðherra Noregs segir leyfisútgáfuna í dag sögulegan viðburð. Norski olíumálaráðherrann Ola Borten Moe mætti í Ráðherrabústaðinn klukkan níu í morgun ásamt fylgdarliði til fundar við Steingrím J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra og áttu fulltrúar ríkjanna klukkustundarlangan fund áður en kom að stóru stundinni. 4. janúar 2013 18:37 Er það von um "elefant" sem lokkar á Drekann? Olíumálaráðherra Noregs, Ola Borten Moe, er í viðtali við Aftenbladet í Stavanger spurður um hvort hann telji að "elefant“ sé á Drekasvæðinu. Hugtakið "elefant“, eða fíll, er það sem norski olíugeirinn notar um risalindir, eftir stærsta landdýri jarðar, en það eru olíusvæði eins og Ekofisk, Statfjord, Troll, Gullfaks og Mjallhvít. Hugtakið "flóðhestur“ er svo notað um lindir af næstu stærð þar fyrir neðan. 5. janúar 2013 11:19 Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira
Þriðja olíuleitarleyfið á Drekann veitt í dag Þriðja sérleyfinu til leitar og vinnslu olíu á Drekasvæðinu verður formlega úthlutað við athöfn sem hefst núna klukkan tvö í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík. 22. janúar 2014 13:30
Eyfirðingar þjónusta olíuleitarflota af Drekasvæðinu Floti fjögurra olíurannsóknarskipa kom inn til Akureyrar í dag af Drekasvæðinu til að sækja sér vistir og þjónustu sem og til áhafnaskipta. Eyfirðingar fá þarna forsmekkinn af þeim umsvifum sem vaxandi olíuleit í Norðurhöfum gæti skapað á Íslandi á næstu árum. Rannsóknarskipið Nordic Explorer fer fyrir flotanum en með því eru þrjú fylgdarskip, tvö færeysk og eitt íslenskt, Valberg VE. 10. júlí 2012 20:00
Reyðarfjörður valinn sem olíubær Íslands Eykon Energy hefur valið Reyðarfjörð sem þjónustumiðstöð fyrir bæði olíuleit og olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar segir þetta skapa gríðarleg tækifæri. 11. maí 2014 19:15
CNOOC vill flýta borun í Drekann Fulltrúar kínverska olíufélagsins CNOOC kynntu samstarfsaðilum sínum í dag verkáætlun sem miðar við að boranir hefjist á Drekasvæðinu mun fyrr en áður var gert ráð fyrir. 12. júní 2014 19:15
Vonast til að olíuframleiðslan hefjist eftir 7-8 ár Olíuframleiðsla á landgrunni Íslands gæti hafist eftir sjö til átta ár og fyrsti borpallurinn komið eftir þrjú til fjögur ár. Þetta segir forstjóri skoska olíufélagsins Faroe Petroleum, sem nú er orðinn rétthafi fyrsta olíuvinnsluleyfis í lögsögu Íslands. Olíumálaráðherra Noregs segir leyfisútgáfuna í dag sögulegan viðburð. Norski olíumálaráðherrann Ola Borten Moe mætti í Ráðherrabústaðinn klukkan níu í morgun ásamt fylgdarliði til fundar við Steingrím J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra og áttu fulltrúar ríkjanna klukkustundarlangan fund áður en kom að stóru stundinni. 4. janúar 2013 18:37
Er það von um "elefant" sem lokkar á Drekann? Olíumálaráðherra Noregs, Ola Borten Moe, er í viðtali við Aftenbladet í Stavanger spurður um hvort hann telji að "elefant“ sé á Drekasvæðinu. Hugtakið "elefant“, eða fíll, er það sem norski olíugeirinn notar um risalindir, eftir stærsta landdýri jarðar, en það eru olíusvæði eins og Ekofisk, Statfjord, Troll, Gullfaks og Mjallhvít. Hugtakið "flóðhestur“ er svo notað um lindir af næstu stærð þar fyrir neðan. 5. janúar 2013 11:19