Veiði

Lokatölur úr laxveiðiánum

Karl Lúðvíksson skrifar
Þrátt fyrir að sumarið hafi verið lélegt í laxinum víða settu margir í maríulaxana sína
Þrátt fyrir að sumarið hafi verið lélegt í laxinum víða settu margir í maríulaxana sína Mynd: KL
Þá liggja fyrir lokatölur úr laxveiðiánum eftir þetta sumarið að undanskildum ánum sem byggja veiði á seiðasleppingum en í þeim er veitt til 20. október.

Veiðisumarið 2014 fer í bækurnar sem eitt það lakasta í heildarveiði þrátt fyrir að margar árnar á norðurlandi hafi átt góðu gengi að fagna.  Veiðin var sýnu verst á vesturlandi og nokkrar ár þar til að mynda Langá, Hítará, Grímsá, Laxá í Kjós, Álftá, Andakílsá, Norðurá, Laxá í Dölum og nokkrar til viðbótar hafi átt sín lélegustu ár frá 1975 þegar núverandi form veiðiskráninga hófst.  Ef listinn er skoðaður eru samanburðartölurnar frá metsumrinu 2013 og gefa þess vegna ekki alveg rétta mynd af niðursveiflunni.  Laxá á Ásum, Blanda og Miðfjarðará eru til að mynda að skila góðri veiði í sumar og þar á bæ var meira af tveggja ára laxi en í meðalári.  60-70% hlutfall tveggja ára laxa er til að mynda ekki óalgengt í veiðibókumá norðurlandi og sama var upp í Þverá og Kjarrá.  Það stefnir í að það verði aðeins ein á sem á möguleika á að fara í 3000 laxa og það er Ytri Rangá en veiðin í henni síðustu daga hefur verið ágæt og dæmi um að veiðimenn fari heim með 10 laxa eftir daginn sem er þó farinn að styttast vel vegna sólarleysis.  Topp 10 listinn er hér fyrir neðan og listann í heild sinni má finna á www.angling.is

VeiðivatnDagsetningHeildarveiðiStangirVeiði 2013
Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki.9. 10. 20142905205461
Eystri-Rangá8. 10. 20142479184797
Blanda1. 10. 2014Lokatölur 1931142611
Miðfjarðará1. 10. 2014Lokatölur 1694103667
Þverá + Kjarará17. 9. 2014Lokatölur 1195143373
Laxá á Ásum24. 9. 2014Lokatölur 100621062
Selá í Vopnafirði1. 10. 2014Lokatölur 100471664
Norðurá17. 9. 2014Lokatölur 924153351
Stóra-Laxá1. 10. 2014Lokatölur 882101776
Laxá í Aðaldal1. 10. 2014Lokatölur 849181009





×