Veiði

Lokatalan úr Nesi í Aðaldal er 370 laxar

Karl Lúðvíksson skrifar
Skúli með einn af stóru haustlöxunum af Nessvæðinu í Aðaldal í sumar
Skúli með einn af stóru haustlöxunum af Nessvæðinu í Aðaldal í sumar
Veiðimenn liggja þessa dagana yfir veiðitölum liðins sumars og spá í spilin fyrir næsta sumar.

Þessa dagana eru veiðimenn að bóka fyrir sumarið 2015 og eftir slaka veiði í sumar er ljóst að einhverjir veiðileyfasalar koma til með að finna fyrir harkalegum samdrætti og er það þegar komið í ljós í nokkrum ánum þar sem föst holl til margra ára hafa dregið sig til baka.  Það er þó líka gott að frétta hjá mjög mörgum og Nessvæðið í Laxá í Aðaldal er klárlega eitt af þeim svæðum sem stóð upp úr í sumar enda hefur sjaldan eða í það minnsta ekki mjög lengi verið jafn mikið af stórlaxi skráður þar í bækur.  Það er greinilega að veiða og sleppa er að skila sér vel til baka og afraksturinn af þeim árangri meðal annars sjáanlegur í bókunum næsta sumars.

Nú er svo komið að svæðið er að verða uppselt en það má líklega telja lausar stangir á fingrum annarrar handar svo þeir sem ætla að tryggja sér stöng næsta sumar þurfa líklega að hafa hraðar hendur.  Svæðið á sér stórann aðdáandahóp sem er ekki að leita eftir neinni magnveiði hendur draumnum um að setja í stórlax úr þessu magnaða svæði.  Aðrir leigutakar sem bera sig vel eru t.d. Salmon Tails sem halda utan um veiðina í Laxá á Ásum en það er þegar uppselt í hana næsta sumar.






×