Bílar

Nýr Mazda CX-3

Finnur Thorlacius skrifar
Mazda CX-3.
Mazda CX-3.
Mazda kynnir nú glænýjan jeppling á bílasýningunni í Los Angeles, Mazda CX-3. Sýningin opnar fyrir almenning á föstudaginn, en blaðamenn í dag. Mazda CX-3 er byggður á smábílnum Mazda2 og því er hér um að ræða fremur smávaxinn jeppling, eins og svo margir bílaframleiðendur smíða í dag.

Eins og í flestum öðrum Mazda bílum situr 2,0 lítra Skyactive vél undir húddinu sem getur bæði tengst 6 gíra beinskiptingu sem sjálfskiptingu. Bíllinn mun bæði fást fjórhjóladrifinn og framhjóladrifinn, en fjórhjóladrifið er það sama og finnst í Mazda CX-5 jepplingnum, sem selst hefur eins og heitar lummur um allan heim.

Innréttingin í Mazda CX-3 er nauðalík þeirri í Mazda2 og naumhyggjuleg þar sem takkaflóðið er ekki allsráðandi. Það sem vekur helst athygli í innréttingunni er upplýsingaskjár sem sprettur uppúr mælaborðinu við ræsingu, búnaður sem helst hefur sést í dýrari bílum.

Gera má ráð fyrir að Mazda mokselji af þessum nýja jepplingi, en öllum nýjum bílum Mazda hefur verið tekið með kostum á undanförnum misserum, enda hafa bílarnir allir þótt afar vel heppnaðir og með frábærar vélar.  







×