Bílar

Brekkuklifur í Japan

Finnur Thorlacius skrifar
Forsvarsmenn bílablaðsins Motorhead Magazine í Japan virðast eiga góða og háttsetta aðila að. Fengu þeir lokað veginum upp Hakone fjall, leið sem þekkt er sem Honda Turnpike, og buðu sumum af þekktustu ökumönnum Japans að reyna bíla sína upp fjallið.

Eru það sérútbúnir bílar, meðal annars af gerðunum Ford GT40, Nissan GT-R, Subaru Impreza WRX STI og BMW Z4. Myndskeiðið frá leik þeirra upp fjallið er mjög flott og ekki skortir hraðann á leið þeirra uppá topp.

Fyrir bílaáhugamenn er þetta myndskeið veisla fyrir augað og full ástæða til að setja hátalarana í botn.






×