Ísland stendur sig verst af EES-ríkjunum Bjarki Ármannsson skrifar 1. mars 2014 08:00 Evrópumál Íslands hafa verið í brennidepli undanfarna daga. Vísir/Valli
Frammistaða Íslands við að innleiða tilskipanir og reglugerðir Evrópska efnahagssvæðisins, EES, á réttum tíma er langlökust allra ríkja á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ESA, eftirlitsstofnun EFTA. Innleiðingarhalli Íslands í nóvember 2013 var 3,2 prósent. Talan táknar hlutfall tilskipana sem ekki voru innan tímamarka, en 37 tilskipanir voru ekki að fullu innleiddar á Íslandi á réttum tíma. Til samanburðar má nefna að innleiðingarhalli innan ríkja ESB var á sama tíma að meðaltali 0,7 prósent og ekkert ríki innan sambandsins fór yfir 1,5 prósent. „Þetta lítur hvorki vel út fyrir Ísland né EFTA-ríkin í heild,“ segir Ólafur Einarsson, framkvæmdastjóri innri markaðar ESA. Hann bendir á að Noregur er næstneðstur á eftir Íslandi í frammistöðumatinu, með innleiðingarhalla upp á 1,8 prósent. „Þetta er ekki gott fyrir trúverðugleika EFTA-ríkjanna sem samstarfsaðila sambandsins.“ Síðasta frammistöðumat ESA var gert í maí 2013 og var innleiðingarhalli Íslands þá 2,3 prósent, sem var þá sá mesti sem verið hafði um árabil. Reglugerðum sem ekki eru innleiddar innan tímamarka hefur stórfjölgað og tíminn sem Ísland fer fram úr tímamörkum er lengstur. Hann er nú 13,1 mánuður að meðaltali.
Mest lesið Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira