Heróínneysla til fyrirmyndar Atli Fannar Bjarkason skrifar 20. mars 2014 07:00 Charles Barkley var hetjan mín þegar ég var lítill strákur á Selfossi. Ég spilaði körfubolta, lét snoða á mér höfuðið, keypti bolina hans og setti Phoenix Suns-derhúfu á hausinn, þrátt fyrir að vera augljóslega með allt of lágt enni til að bera slíka húfu sómasamlega. Barkley var enginn engill og fór óhefðbundnar leiðir, innan vallar sem utan. Hann pantaði pitsur á varamannabekkinn í háskólaboltanum, reif kjaft, lamdi menn á börum og tapaði háum fjárhæðum í spilavítum. Þegar körfuboltaáhuginn dofnaði kom áhugi á tónlist í staðinn. Þá byrjaði ég að líta upp til Philips Anselmo, söngvara þungarokksveitarinnar Pantera. Ég lét mig dreyma um húðflúr á hausinn og klæddist snjáðum Converse-skóm. Á leiðinni í skólann hlustaði ég á frábærar plötur á borð við The Great Southern Trendkill og Vulgar Display of Power. Ég skildi ekki af hverju skólafélagar mínir vildu ekki hlusta á þessa stórkostlegu tónlist í stærðfræðitímum enda fannst mér fátt meira töff en þegar Anselmo rak upp eitt af sínum mögnuðu öskrum. Anselmo var djúpt sokkinn eiturlyfjafíkill. Svo djúpt sokkinn að hann lést einu sinni úr of stórum skammti heróíns áður en hann var endurlífgaður nokkrum mínútum síðar. Hann hvatti aðdáendur sína beinlínis til að reykja gras og bráðskemmtileg heimamyndbönd hljómsveitarinnar sýndu taumlausa áfengis- og fíkniefnaneyslu í bland við uppátæki sem engin móðir yrði stolt af. Ég hefði betur valið mér aðrar fyrirmyndir því þökk sé þeim þá nýti ég hvert tækifæri sem gefst til að rífa kjaft. Ég get ekki fundið lyktina af spilastokki án þess að leggja allt mitt undir, tapa því og skuldsetja fjölskyldu mína í leiðinni — kenni óhóflegri áfengisneyslunni um það. Hnefa mína nota ég ekki í annað en að endurraða andlitum óvina minna. Og reyndar annarra sem verða á vegi mínum og fíkniefni stenst ég ekki. Það er fátt betra en að sprauta sig með góðum skammti af heróíni. Helst vil ég sprauta mig til ólífis. Svona eins og fyrirmyndin mín. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Atli Fannar Bjarkason Mest lesið Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun