„Ég sleppti hlutverkinu glaður en Svandís er gríðarlega þokkafull pía.“
Myndin fjallar um einkaspæjarana Harrý og Heimi sem hjálpa þokkadísinni Díönu Klein í leit hennar að föður sínum, veðurathugunarmanni á Reginnípu. Harrý og Heimir leggja í leiðangur upp á hálendið og tekst að stöðva svívirðilegt samsæri danskra skíðaáhugamanna um að stela íslenska hálendinu og flytja það úr landi. Örn leikur einmitt líka illmennið í myndinni.

„Við höfðum skamman tíma enda ekki með hundruð milljóna króna úr að spila. Við nýttum tímann vel og þá aura sem höfðu safnast í þetta verkefni og tókum myndina á átján dögum. Við erum vanir því að vinna mjög hratt og skipuleggja dagana vel þannig að við komum því mun betur undirbúnir að verkefninu. Leikstjórinn Bragi Hinriksson hefur líka góð tök á ævintýramyndum og vorum við ofboðslega glaðir með hans þátt í þessu.“

„Það ríkti mikil gleði á settinu og ég held að hún skíni í gegn í myndinni. Að mínu mati er þetta gríðarskemmtileg grínmynd. Þetta er ekki gamanmynd og ekki farsi. Ég get ekki útskýrt það öðruvísi en að við brjótum aðeins upp rammann og gerum græskulaust grín. Við erum náttúrulega litaðir af myndum sem við sáum í æsku eins og Blazing Saddles, Airplane-myndirnar og Top Secret,“ bætir Örn við. En er ekki byrjað að leggja línurnar að næstu mynd?
„Ekki alvarlega. Þetta tekur allt sinn tíma.“
Byrjaði allt í útvarpinu
Harrý og Heimir komu fyrst fram á sjónarsviðið í útvarpsleikritum á Bylgjunni seint á níunda áratug síðustu aldar. Ellefu útvarpsþættir voru framleiddir sem voru 25 mínútur að lengd hver og ein saga í hverjum þætti. Bíómyndin er byggð á einni af þeim sögum. Árið 2009 var síðan leikritið um Harrý og Heimi sett upp í Borgarleikhúsinu og sýnt 150 sinnum.