Veiði

Kærður veiðimaður segist brenna á altari sértrúarsafnaðar

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Þessi ljósmynd af Einari olli miklu fjaðrafoki á spjallrásum stangveiðimanna.
Þessi ljósmynd af Einari olli miklu fjaðrafoki á spjallrásum stangveiðimanna. Mynd/Aðsend
Einar S. Ólafsson, sem kærður hefur verið af þjóðgarðinum á Þingvöllum fyrir að veiða án leyfis og drepa urriða úr vatninu, segist hafa verið í fullum rétti við veiðarnar. Rangur maður var kærður í fyrstu.

Einar segist hafa verið með veiðileyfi frá ábúandanum á Kárastöðum og veitt fyrir landi hans eins og hann hafi margoft gert á undanförnum áratugum. Hann hafi verið með gúmmíbát og veitt vel á spún núna um páskana. Fyrir landi þjóðgarðsins er hins vegar aðeins veitt á flugu fram til 1. júní og skylt er að sleppa öllum urriða.

Ekki hægt að stækka þjóðgarð inn í stofu

„Þjóðgarðurinn var stækkaður fyrir nokkrum árum en það er alveg klárt að þótt þjóðgarður sé stækkaður ganga menn aldrei á eignar- eða hlunnindarétt lögbýla. Þú stækkar ekki þjóðgarð inn í stofu til einhvers fólks,“ segir Einar og vísar í lög. „Þjóðgarðurinn getur sett reglur fyrir sínu landi, það er innan svokallaðra netalaga sem eru 110 metrar frá landi. Utan við það er almenningur sem allir, sem hafa á annað borð leyfi til veiða í vatninu, mega óskilyrt veiða í.“

Einar segir að í kærunni á hendur sér komi fram að Þingvallanefnd dragi í efa rétt Kárastaða til veiðileyfasölu. Um mjög mikla hagsmuni sé fyrir ábúandann að ræða og lögmenn þeirra muni vinna saman að málinu.

„Nú er málið komið í lögformlegan farveg og það er í sjálfu sér gott og ég fagna því,“ segir Einar, sem kveðst hafa orðið fyrir miklu aðkasti eftir að hann birti mynd af sér með veiðina á Facebook.

Eins og ég hafi drepið mann

„Maður er lentur inn á altari í sértrúarsöfnuði og þar brenn ég núna. Það er eins og ég hafi farið á Þingvöll og drepið menn en ekki veitt urriða og borðað hann með vinum mínum. Þessir urriðaverndarmenn eru sannfærðir um að það eigi að veiða þessa fiska og sleppa þeim; að það megi ekki taka úr stofninum. Þetta er náttúrlega eins og hver annar kjánagangur,“ segir Einar sem ítrekar að urriðastofnar í vatninu séu í uppsveiflu.

Rangur Einar kærður í fyrstu

Nafni og jafnaldri Einars S. Ólafssonar, Einar Ólafsson, var reyndar fyrir vangá fyrst kærður í málinu. „Þetta lið á Þingvöllum kærði vitlausan mann. Það er alveg fáránlegt. Síðan hringdi lögfræðingur þjóðgarðsins og baðst afsökunar,“ segir Einar Ólafsson.






×